Talsverð tíðindi í könnun Gallup í Reykjavík

Talsverð tíðindi í könnun Gallup í Reykjavík

Þriðji hver borgarbúi myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag. Nýr meirihluti sem myndaður var í febrúar er fallinn.

Talsverð tíðindi í könnun Gallup í Reykjavík

Meirihlutinn í borginni sprengdur | 1. apríl 2025

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og oddvitar meirihlutans.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og oddvitar meirihlutans. Samsett mynd

Þriðji hver borgarbúi myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag. Nýr meirihluti sem myndaður var í febrúar er fallinn.

Þriðji hver borgarbúi myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag. Nýr meirihluti sem myndaður var í febrúar er fallinn.

Þetta kemur fram í könnun Gallup sem Viðskiptablaðið lét framkvæma fyrir sig.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur allra flokka með 33,9% fylgi í borginni en flokkurinn fékk rúmlega 25% í síðustu kosningum. Samkvæmt könnuninni fengi flokkurinn níu borgarfulltrúa af 23.

Meirihlutinn fallinn

Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sósíalistar, Píratar og Vinstri græn mynduðu meirihluta í lok febrúar með alls 12 borgarfulltrúa. Samkvæmt könnun Gallup fengju flokkarnir nú aðeins samanlagt tíu borgarfulltrúa.

Samfylkingin mælist með 20% fylgi en Sósíalistar mælast með 13,1% fylgi. Þannig fengi Samfylkingin fimm borgarfulltrúa eins og í síðustu kosningum en Sósíalistar þrjá, sem þýðir að flokkurinn myndi bæta við sig einum manni. 

Píratar mælast með 5,5% fylgi og myndu tapa tveimur borgarfulltrúum og aðeins fá einn mann kjörinn.

Vinstri græn mælast með 4,6% fylgi sem myndi tryggja þeim einn borgarfulltrúa en Flokkur fólksins mælist með 3,6% fylgi og myndi ekki ná inn manni í borgarstjórn.

Viðreisn í sókn frá síðustu kosningum

Framsóknarflokkurinn virðist hafa bætt við sig smá fylgi eftir að hafa sprengt gamla stjórnarsamstarfið og mælist flokkurinn nú með 4,7% fylgi.

Það myndi skila flokknum einum borgarfulltrúa en flokkurinn fékk í síðustu kosningum fjóra borgarfulltrúa kjörna.

Viðreisn mælist með 9,5% fylgi sem er talsvert meira en flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Myndi flokkurinn fá tvo menn kjörna en í dag er flokkurinn aðeins með einn mann í borgarstjórn.

Miðflokkurinn mælist með 5,1% fylgi og næði einum manni inn í borgarstjórn, en í síðustu kosningum náði flokkurinn ekki inn manni.

Könnun Gallup var framkvæmd dagana 1. til 30. mars 2025. Í úrtaki voru 3.598 Reykvíkingar 18 ára og eldri en svarhlutfall var 47,7%.

mbl.is