Nýrri línu Hildar Yeoman var fagnað á fyrsta degi Hönnunarmars með ljósmyndasýningu í Yeoman á Laugaveginum. Það var margt um manninn enda vor í lofti.

Línan ber heitið Kokomo og er með suðrænu þema en þetta er sumarlína hönnuðarins. Innblásturinn er sóttur í sólríkar strendur og ferðir til spænsku eyjunnar Mallorca, Key West og til Ítalíu. En einnig björtu sumarnóttanna á Íslandi og stuðsins sem því fylgir þegar það er bjart allan sólarhringinn.
„Við Íslendingar þekkjum hvað það er að bíða eftir sumri sem kannski kemur ekki, þannig að ég vildi allavega koma með sumarið í línunni. Þetta eru litríkir kjólar, peysur og sundföt sem henta konum af öllum stærðum og gerðum,“ segir Hildur Yeoman.