Eignaðist sitt fjórða barn með aðstoð staðgöngumóður

Frægir fjölga sér | 4. apríl 2025

Bandaríska verðlaunaleikkonan Michelle Williams eignaðist sitt fjórða barn á dögunum með eiginmanni sínum, leikstjóranum Thomas Kail. Þetta er þriðja barn hjónanna saman, en fyrir á Williams 19 ára gamla dóttur með leikaranum Heath Ledger heitnum.

Michelle Williams.
Michelle Williams. Ljósmynd/AFP

Samkvæmt heimildum fréttamiðilsins People kom þriðja barn hjónanna í heiminn með aðstoð staðgöngumóður fyrir sex vikum síðan, en undanfarna daga hafa Williams og Kail sést á rölti um götur New York-borgar með barnavagn.

Williams og Kail gengu í hjónaband árið 2020, en áður átti hún í sambandi með ástralska leikaranum Heath Ledger á árunum 2004 til 2007. Ledger lést 2008.

Þá var hún gift tónlistarmanninum Phil Elverum frá árinu 2018 til 2019.

mbl.is