Margmenni og mikið fjör var á opnun sýningarinnar 99 ár 867,815,464 klukkustundir á HönnunarMars. Halla Tómasdóttir forseti Íslands og eiginmaður hennar Björn Skúlason mættu hress og virtu fyrir sér nýjar flíkur í bland við eldri eins og Ólympíujakka frá árinu 1998.

Sýningin sem hefur nú þegar verið útfærð í London og Kaupmannahöfn og vakti mikla athygli og er loks komin hingað til lands í tilefni Hönnunarmars.
„Þetta er í raun fyrsta skipti sem við höfum gamlar flíkur úr safni fyrirtækisins til sýnis opinberlega og viðbrögðin hafa verið frábær. Það er skemmtilegt að sjá fólk upplifa minningar í gegnum þessar flíkur og líka hve margir kannast við flíkurnar enda eru sumar þeirra enn til í dag í vörulínunni og hafa nánast ekkert breyst í áratugi,“ sagði Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður, í fréttatilkynningu.