Anna Elísabet Hákonardóttir er nýkomin heim frá Taílandi þar sem hún dvaldi ein í sex vikur. Eftir að hún útskrifaðist úr Verslunarskóla Íslands hefur hún unnið í íbúðakjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Hún er lífsreyndari eftir að hafa farið í þetta ferðalag og segir það allt öðruvísi að ferðast ein með sjálfri sér en að fara með öðru fólki í ferðalög. Sjálfefling var í hámarki í ferðinni því í fjórar vikur dvaldi hún í leikfimisbúðum. Hún fór upphaflega í ferðina til að verða flottari og sjálfsöruggari en í dag finnst henni það hafa verið aðeins of grunnhyggið því það hafi svo margt gerst í ferðinni sem breytti viðhorfum hennar til lífsins.
Anna Elísabet Hákonardóttir er nýkomin heim frá Taílandi þar sem hún dvaldi ein í sex vikur. Eftir að hún útskrifaðist úr Verslunarskóla Íslands hefur hún unnið í íbúðakjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Hún er lífsreyndari eftir að hafa farið í þetta ferðalag og segir það allt öðruvísi að ferðast ein með sjálfri sér en að fara með öðru fólki í ferðalög. Sjálfefling var í hámarki í ferðinni því í fjórar vikur dvaldi hún í leikfimisbúðum. Hún fór upphaflega í ferðina til að verða flottari og sjálfsöruggari en í dag finnst henni það hafa verið aðeins of grunnhyggið því það hafi svo margt gerst í ferðinni sem breytti viðhorfum hennar til lífsins.
Anna Elísabet Hákonardóttir er nýkomin heim frá Taílandi þar sem hún dvaldi ein í sex vikur. Eftir að hún útskrifaðist úr Verslunarskóla Íslands hefur hún unnið í íbúðakjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Hún er lífsreyndari eftir að hafa farið í þetta ferðalag og segir það allt öðruvísi að ferðast ein með sjálfri sér en að fara með öðru fólki í ferðalög. Sjálfefling var í hámarki í ferðinni því í fjórar vikur dvaldi hún í leikfimisbúðum. Hún fór upphaflega í ferðina til að verða flottari og sjálfsöruggari en í dag finnst henni það hafa verið aðeins of grunnhyggið því það hafi svo margt gerst í ferðinni sem breytti viðhorfum hennar til lífsins.
„Fyrstu tvær vikurnar var ég í Patong í Phuket og var ekki með neina dagskrá. Ég vildi finna ánægjuna í því að vera ein með sjálfri mér því hingað til hef ég ekki verið dugleg að því. Þar var ég bara að slaka á, sóla mig og skrifa bók sem ég byrjaði á í haust. Þaðan fór ég svo beinustu leið í fitnesscamp í fjórar vikur,“ segir Anna.
Aðspurð um leikfimisbúðirnar segir Anna að þær heiti Titan Fitness Camp þar sem hægt er að stunda fjölbreytta hreyfingu.
„Þetta er semsagt þannig að það er svokallaðar æfingabúðir þar sem fara fram allt að sjö æfingar á dag, nema á laugardögum þá eru tvær æfingar og svo eru sunnudagar hvíldardagar,“ segir Anna.
Anna keypti pakka sem kallast Transformation en í honum var innifalið að fara í alla tíma sem voru í boði en líka þrjár máltíðir á dag, tveir próteinþeytingar, sauna og kaldur pottur.
„Dagarnir byrjuðu á einkaþjálfun þar sem ég lærði MuayThai. Það var ekkert planið að læra það en ég var heppin með þjálfarann minn, hann er atvinnumaður í þessari íþrótt þannig að hann kenndi mér það. Svo fór ég oftast í göngutúr, í sólbað og fór svo í þá hóptíma sem mér leist vel á. Það voru svo margir mismunandi tímar í boði eins og spinning, body 360, Hyrox, glutebuilder, MuayThai og margt fleira. Seinni partinn fór ég svo stundum bara í ræktina ef ég nennti,“ segir Anna.
Hvernig fréttir þú af æfingabúðunum?
„Ég hafði heyrt um þessa götu áður, semsagt Fitness Street, í vinnunni. Ég fann svo pakka hjá Kilroy með öðrum æfingabúðum en þessum og bókaði það bara strax. Það fór svo á hausinn í janúar og þá þurfti ég að finna mér nýjar æfingabúðir. Þá valdi ég þetta því ég þekkti fólk sem hafði farið þangað áður og mældi með þessu,“ segir Anna.
Þú minntist á að þú værir að skrifa bók. Hvað getur þú sagt um bókina?
„Ég er að skrifa niður ýmislegt sem hefur gengið á í mínu lífi. Ég er aðallega að skrifa hana til þess að vinna almennilega úr öllu. Það hjálpar mér rosalega að skrifa allt niður. Ég veit ekkert hvort ég muni gefa hana út eða ekki,“ segir Anna. Hún nefnir að það gæti þó verið gagnlegt að gefa hana út þar sem hún telur að margir gætu tengt við hennar upplifanir.
Hvað hefur gengið á í lífinu?
„Það hefur margt gengið á hjá mér eins og öllum öðrum. Mikið af yndislegum hlutum en líka mikið af erfiðum hlutum. Erfiðu hlutirnir voru svolítið alvarlegir og margir, sérstaklega árið 2024,“ segir Anna og vill ekki fara mjög djúpt í þá hluti.
„Í fyrra brugðust mér tvær manneskjur, sem voru mér mjög nánar, á mjög slæman og alvarlegan hátt. Eftir það ákvað ég að byrja skrifa bók. Því allt sem ég hef þurft að upplifa hafði mótað mig að manneskju sem ég var ekki ánægð með. Mér leið illa, ég var ekki ég sjálf og ég hagaði mér á hátt sem ég stend ekki fyrir. Ég gerði mér strax grein fyrir því að ég þurfti að vinna úr öllu sem hafði gengið á seinustu árin og þess vegna byrjaði ég að skrifa bók,“ segir Anna.
„Í stuttu og einföldu máli þá bókaði ég þessa ferð til að verða „flottari“ því mér fannst ég ekki vera nógu flott. Í dag finnst mér það alveg galið. Að ég hafi leyft sjálfri mér að hugsa svona til mín er ekki í lagi. Ég vildi líka fara í þessa ferð til að vinna í sjálfri mér því mér leið ekki vel sem manneskju. Ég var orðin ólík mér og þurfti að grípa aðeins inn í. Þetta kallaði rosalega mikið á mig og innst inni þurfti ég á þessu að halda,“ segir Anna.
Varstu búin að skipuleggja ferðalagið lengi?
„Já! Eða ég bókaði ferðina í lok júlí og það var ekkert mikið sem þurfti að skipuleggja en ég bókaði hana alveg með löngum fyrirvara.“
Hvað stóð upp úr á ferðalaginu?
„Það er ótrúlega mikið af hlutum sem stóðu upp úr. Það mikilvægasta sem ég tók út úr þessu ferðalagi var hvað þetta hjálpaði mér mikið að komast á þann stað í lífinu sem ég vil vera á. Ég vil geta verið ég sjálf og verið drull um það hvað fólki finnst. Áður en ég fór í ferðina eyddi ég mikilli orku í að passa hvernig ég liti út og var hrædd um hvað fólki gæti fundist um mig. Núna er ég til dæmis að birta myndböndum af mér á netinu þar sem ég tala ensku. Það er eitthvað sem ég hef ekki þorað áður. Viðtökurnar komu mér virkilega á óvart,“ segir Anna.
Var eitthvað sem kom þér á óvart?
„Það sem kom mér á óvart er fólkið sjálft, sem sagt Taílendingarnir. Flest allir búa við mikla fátækt og í allt öðrum raunveruleika en túristarnir en samt eru þau alltaf til í að hjálpa. Þau eru yndislegt fólk í alla staði og öll svo hamingjusöm eitthvað. Annað sem kom mér líka á óvart er að ég hélt að ég væri bara að fara vera með jafnöldrum mínum á fitness-götunni en það kom fljótt í ljós að mamma hefði alveg notið sín jafn mikið og ég þarna. Það kom mér líka á óvart hvað það er létt að ferðast ein og bara yndislegt,“ segir Anna.
Hefur þú ferðast á þessar slóðir áður?
„Já ég fór til Taílands árið 2023 með tveimur vinkonum mínum. Við ferðuðumst um Taíland í tvær vikur. En það var allt öðruvísi frí, þá var ég með vinkonum og við vorum þarna til að ferðast um landið og skoða og sjá allt. Núna var þetta allt öðruvísi því ég fór ein og ekki til þess að ferðast um landið,“ segir Anna.
Horfir þú öðruvísi á samfélagið eftir þetta?
„Já, sem betur fer! Ég horfi allt öðruvísi á lífið bara yfirhöfuð eftir þessa ferð, eins klisjulega og það hljómar þá er það bara þannig. Í fyrsta lagi er ég bara virkilega þakklát fyrir það að vera Íslendingur því það eru svo ótrúlega mikil forréttindi sem maður gerir sér ekki nógu mikla grein fyrir fyrr en maður fer á þessar slóðir. Ég áttaði mig líka á því að svo lengi sem þú ert að lifa lífinu fyrir sjálfan þig þá hægt og rólega gerast góðir hlutir. Það er rosalegt frelsi sem ég finn fyrir eftir að ég uppgötvaði þetta.“
Ertu með einhver góð ráð fyrir fólk sem vill upplifa þennan hluta heimsins?
„Já, að fara þangað ein er frábær upplifun sem getur ekki annað en breytt manni til hins betra. Ég hef gert bæði, farið með vinkonum og líka ein, og eins mikið og ég elskaði að vera með vinkonum mínum þarna þá var eitthvað svo töfrandi að vera þarna ein. Svo bara muna að nota sólarvörn því sólin þarna er helvíti sterk!“
Hvað kostaði ferðalagið?
„Ferðalagið kostaði um eina milljón allt í allt. Æfingabúðirnar kostuðu 470 þúsund, hinn kostnaðurinn eru flugin, gisting áður en ég for í campið og peningur sem ég eyddi úti.“
Hvernig pakkaðir þú fyrir ferðina?
„Úff það var nú heldur betur áskorun! Ég tók eina litla handfarangurs tösku með mér. Eina sem ég pakkaði voru næstum öll ræktarfötin mín, tvö bikiní og tveir strandarkjólar. Ég var ekki lengi að kaupa mér nýja handfarangurstösku og slatta af fötum þegar ég kom út! Enda fattaði ég fljótt að ég þurfti nú aðeins meira af venjulegum fötum.“
Hvað tekur nú við?
„Það sem tekur núna við er vinnan mín á íbúðarkjarnanum sem ég hef unnið á í 2 ár. Ég er líka að skrifa bók hægt og rólega þannig að ég held því líka áfram! Svo er það mikilvægasta að halda áfram að vinna í sjálfri mér og vera sú manneskja sem ég vil vera. Þá getur ekkert stoppað mig!“