Instagram: Áslaug Arna vaknaði í Mílanó

Instagram | 7. apríl 2025

Instagram: Áslaug Arna vaknaði í Mílanó

Instagram, Instagram, Instagram, já, það er alltaf nóg um að vera á Instagram.

Instagram: Áslaug Arna vaknaði í Mílanó

Instagram | 7. apríl 2025

Það er alltaf gaman á Instagram!
Það er alltaf gaman á Instagram! Samsett mynd

Instagram, Instagram, Instagram, já, það er alltaf nóg um að vera á Instagram.

Instagram, Instagram, Instagram, já, það er alltaf nóg um að vera á Instagram.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir flaug til Ítalíu til að næla sér í D-vítamín á meðan Júnía Lín Jónsdóttir gerði sér lítið fyrir og lauk hálfmaraþoni í Lundúnum.

Kristján Einar Sigurðsson, jafnan kallaður Kleini, er kominn í sumargírinn og Hafdís Björk Kristjánsdóttir tók vel á því í ræktinni.

Aldrei verið betri!

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir náði sér sólargeislana til Mílanó á Ítalíu. Hún sagði að fylgjendur sínir mættu eiga von á fleiri myndum af sól, kaffi og blómum.

Í vorgírnum!

Athafnamaðurinn Kristján Einar Sigurðsson er spenntur fyrir bjartari veðri og klæddi sig upp á í hlýrabol og vesti í tilefni þess.

View this post on Instagram

A post shared by KLEINI (@kleiini)

Fyrsta hálfmaraþonið!

Júnía Lín Jónsdóttir listrænn stjórnandi lauk sínu fyrsta hálfmaraþoni í London og var eðlilega ánægð með árangurinn.

View this post on Instagram

A post shared by Junia (@junialin)

Uppgjör!

Tískuáhrifavaldurinn og markaðsmanneskjan, Sigríður Margrét, gerði upp fyrsta hluta ársins. Hún segist hafa náð góðu jafnvægi á milli vinnu og einkalífs og ferðaðist til Vestfjarða, Kaupmannahafnar og Parísar. 

Sýndi línurnar!

Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir sýndi kroppinn í svörtu bikiníi við mikinn fögnuð fylgjenda hennar.

Sjónvarpsstjarna!

Elísabet Gunnarsdóttir klæddi þjóðþekkta einstaklinga í tilefni þáttarins Á allra vörum þar sem safnað var fyrir nýju Kvennaathvarfi. 

Slúðrað!

Patrekur Jamie raunveruleikastjarna nýtti íslensku sólargeislana í að slúðra við vini sína.

Stelpudagur!

Sandra Björg Helgadóttir, samfélagsmiðlastjarna og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Bestseller, kíkti í búðir ásamt frænku sinni.

Níundi áratugurinn masteraður! 

Tara Sif Birgisdóttir fasteignasali og dansari, skellti í þematíma.

Sæt í bleiku!

Sundbolur Birgittu Lífar Björnsdóttur, samfélagsmiðlastjörnu og markaðsstjóra World Class, vakti mikla athygli.

Lífið!

Það er alltaf nóg um að vera hjá Rúrik Gíslasyni.

Vöðvastælt!

Einkaþjálfarinn Hafdís Björk Kristjánsdóttir er algjör töffari. 

View this post on Instagram

A post shared by Hafdís Björg (@hafdisbk)

mbl.is