Simmi Vill selur glæný ljós á Facebook

Frægar fjölskyldur | 7. apríl 2025

Simmi Vill selur glæný ljós á Facebook

Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, auglýsir tvö ljós frá Umage til sölu á sölusíðunni Húsgögn til sölu á Facebook. Ljósin eru glæný og hafa aldrei verið notuð að sögn Simma. Ljósin eru kremlituð, skreytt fjöðrum og minna helst á ský á himni.

Simmi Vill selur glæný ljós á Facebook

Frægar fjölskyldur | 7. apríl 2025

Simmi Vill.
Simmi Vill. Mbl.is/Brynjólfur Löve

Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, auglýsir tvö ljós frá Umage til sölu á sölusíðunni Húsgögn til sölu á Facebook. Ljósin eru glæný og hafa aldrei verið notuð að sögn Simma. Ljósin eru kremlituð, skreytt fjöðrum og minna helst á ský á himni.

Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, auglýsir tvö ljós frá Umage til sölu á sölusíðunni Húsgögn til sölu á Facebook. Ljósin eru glæný og hafa aldrei verið notuð að sögn Simma. Ljósin eru kremlituð, skreytt fjöðrum og minna helst á ský á himni.

„Glæný tvö ljós frá Umage. Aldrei verið notuð. Fást saman á 60.000 kr,“ skrifar Simmi við auglýsinguna. 

Ljósin hafa verið vinsæl hér á landi um nokkurra ára bil og hafa þótt falleg í hjóna- eða barnaherbergi. 

Simmi Vill er að reyna að losa sig við glæný …
Simmi Vill er að reyna að losa sig við glæný ljós. Skjáskot/Facebook

Hús Hafrúnar til sölu

Smartland sagði frá því í síðustu viku að Hafrún Hafliðadóttir, kærasta Simma, hafi sett fjölskylduhúsið á sölu.  Í hús­inu eru fjög­ur svefn­her­bergi og því er húsið hent­ugt fyr­ir stóra fjöl­skyldu.

mbl.is