„Fyrsta flugið 90 ára“

Sólarlandaferðir | 8. apríl 2025

„Fyrsta flugið 90 ára“

Nýjasta færsla íslenska flugfélagsins Play hefur heldur betur vakið athygli á Facebook og Instagram í dag.

„Fyrsta flugið 90 ára“

Sólarlandaferðir | 8. apríl 2025

Systurnar Jóhanna, Steinunn og Valdís brostu sínu breiðasta úr flugvélasætum …
Systurnar Jóhanna, Steinunn og Valdís brostu sínu breiðasta úr flugvélasætum sínum. Skjáskot/Instagram

Nýjasta færsla íslenska flugfélagsins Play hefur heldur betur vakið athygli á Facebook og Instagram í dag.

Nýjasta færsla íslenska flugfélagsins Play hefur heldur betur vakið athygli á Facebook og Instagram í dag.

Play deildi skemmtilegri mynd af þremur systrum, þeim Jóhönnu, Steinunni og Valdísi, í sætum sínum í flugvél félagsins, en þær eru á leiðinni á uppáhaldsstað Íslendinga, Tenerife, til að fagna 90 ára afmæli Steinunnar. 

Flugferðin er einstök fyrir afmælisbarnið en þetta er fyrsta flug Steinunnar, ótrúlegt en satt. 

„Fyrsta flugið 90 ára!

Við vorum svo heppin að fá að fljúga systrunum Jóhönnu, Steinunni og Valdísi til sólríku Tenerife í tilefni 90 ára afmælis Steinunnar og í fyrsta flugið hennar!

Þessar yndislegu systur fengu okkur til að brosa... og vonandi ykkur líka,“ stendur við færslu flugfélagsins á Facebook.

Ferðavefurinn óskar Steinunni hjartanlega til hamingju með daginn og fyrstu flugferðina!

mbl.is