Góð stemning var í nýrri verslun As We Grow á dögunum á meðan HönnunarMars stóð yfir. Tvær sýningar voru til sýnis í versluninni, annars vegar sýningin Handan efnisins eftir íslenska keramikhönnuðinn Steinunni Bjarnadóttur og breska skartgripahönnuðinn og glerlistamanninn Estelle Burton.

Hins vegar var það sýning textílbrautar Myndlistaskólans í Reykjavík sem hefur verið í spennandi samstarfi við As We Grow. Þar fengu nemendur að vinna með fyrirtækinu og þróa nýjar hugmyndir að vörum.
Stílistinn Hulda Halldóra Tryggvadóttir, ljósmyndarinn Anna Kristín Óskarsdóttir og Dóra Takefusa voru á meðal þeirra sem létu sig ekki vanta.