Mjöll Hólm, ein af ástsælustu söngkonum þjóðarinnar, heldur tónleika á laugardagskvöldið í Salnum í Kópavogi þar sem hún mun flytja lög af áratugalöngum ferli sínum, perlur á borð við Jón er kominn heim, sem flestir landsmenn þekkja orð fyrir orð, og Lífið er stutt.

Blaðamaður sló á þráðinn til Mjallar í morgunsárið og ræddi stuttlega við hana um ferilinn og tónleikana.
Spurð hvenær hún hafi byrjað í tónlistarbransanum kveðst Mjöll hafa byrjað ung.
„Ég hef sungið alveg frá því ég man eftir mér og var bara á táningsaldri þegar ég söng opinberlega í fyrsta sinn, en það var á tónleikum á vegum Svavars Gests í Austurbæjarbíói árið 1959, þegar ég er 15 ára gömul.
Einu og hálfu ári síðar auglýsti KK-sextettinn eftir söngvurum og það má segja að ég hafi verið hálfplötuð til að stíga á svið og syngja með þeim, en það markaði eiginlega upphafið af ríflega sex áratuga söngferli,” segir hún.
Sumarið 1971 sendi Mjöll frá sér fyrstu plötuna sína, tveggja laga hljómplötu sem innihélt lögin Jón er kominn heim og Ástarþrá á vegum. Fyrrnefnda lagið sló algjörlega í gegn og hefur haldið nafni Mjallar á lofti allt til dagsins í dag.
„Já, það þekkja ekki allir andlitið á mér en það kannast allir við lagið,“ segir hún og hlær.
Eins og fram hefur komið ætlar Mjöll að stíga á svið í Salnum í Kópavogi á laugardagskvöldið ásamt fríðu föruneyti.
Af hverju ákvaðstu að skella í tónleika núna?
„Fólk hefur reglulega spurt mig hvort ég ætli ekki að halda tónleika og ég hef oft velt því fyrir mér í gegnum árin, en ástæðan fyrir því að þetta hefur tekið þetta langan tíma er sú að fyrir tíu árum var ég næstum því farin.
Ég lenti í miklum veikindum, fékk slæma lífhimnubólgu, og var haldið sofandi. Röddin fór og það hefur tekið mig dágóðan tíma að byggja mig upp, en ég hef unnið hörðum höndum síðustu ár, fékk annað tækifæri, og ákvað bara að láta verða af þessu, stend og fell með þeirri ákvörðun.”
Mjöll lofar góðri skemmtun.
Hverju mega áhorfendur eiga von á?
„Ég mun fara yfir ferilinn minn, byrja á þeim lögum sem ég flutti þegar ég var að byrja og svo þræði ég þetta fram til dagsins í dag. Ég hef gefið út tvær plötur og nokkrar smáskífur og á því nóg af efni. Þetta verður mikið fjör.”
Ertu spennt að stíga aftur á svið?
„Það er varla hægt að segja að ég sé að stíga aftur á svið, ég hef alltaf verið að syngja, meðal annars sungið á elliheimilum og haldið mér þannig við.
Ég er enginn byrjandi en jú, ég er mjög spennt.”