71 árs og ungleg sem aldrei fyrr

Poppkúltúr | 9. apríl 2025

71 árs og ungleg sem aldrei fyrr

Svo virðist vera sem fyrirsætan Christie Brinkley hafi fundið æskubrunninn, en hún virðist ekkert hafa elst undanfarna áratugi.

71 árs og ungleg sem aldrei fyrr

Poppkúltúr | 9. apríl 2025

Christie Brinkley er glæsileg.
Christie Brinkley er glæsileg. Skjáskot/Instagram

Svo virðist vera sem fyrirsætan Christie Brinkley hafi fundið æskubrunninn, en hún virðist ekkert hafa elst undanfarna áratugi.

Svo virðist vera sem fyrirsætan Christie Brinkley hafi fundið æskubrunninn, en hún virðist ekkert hafa elst undanfarna áratugi.

Brinkley, 71 árs, lítur stórkostlega út á nýjum myndum sem hún deildi með fylgjendum sínum á Instagram nú á dögunum.

Á myndunum er Brinkley að sóla sig um borð í snekkju, klædd rauðu bikiníi og kimóno.

Fyrirsætan, sem hefur lengi heillað heiminn með fallegu brosi sínu og útgeislun, brosti sínu breiðasta á myndunum, enda ekki annað hægt á svona sælustund.

„Ég er bjartsýn og vona að þú sért það líka! Óska öllum bjartrar sólar og góðra daga!“ skrifaði fyrirsætan við færsluna.

Fylgjendur Brinkley voru margir agndofa yfir fersku og glóandi útliti hennar og voru fjölmargir sem rituðu athugasemdir við færsluna og sögðust vilja eldast svona vel.

Brinkley var uppgötvuð af bandaríska tískuljósmyndaranum Errol Sawyer í París árið 1973 og hefur um árabil verið ein eftirsóttasta fyrirsæta heims.

mbl.is