Hönnunarstúdíóið Studio Miklo opnaði sýninguna Brot á HönnunarMars í verslun íslensku hönnuðanna Magneu Einarsdóttur og Anitu Hirlekar á Hafnartorgi. Á bak við Studio Miklo eru keramikhönnuðirnir Helga Björk Ottósdóttir og Hjördís Gestsdóttir og sýndu þær tilraunir sýnar við að endurnýta gallaðar leirvörur úr eigin smiðju.

Útkoman og ferlið voru til sýnis í versluninni yfir helgina en markmiðið er að nýta það sem fellur til við framleiðslu á eigin vörum í leit að sjálfbærara framleiðsluferli.
Verslun fatahönnuðanna Magneu og Anitu opnaði í fyrra og hafa þær vakið mikla athygli undanfarið við að klæða margar af þekktustu konum landsins. Þar má nefna Höllu Tómasdóttur forseta Íslands sem hefur sótt mikið í prjónavörur Magneu og kjóla frá Anitu.