Bestu gallabuxurnar í verslunum núna

Fatastíllinn | 10. apríl 2025

Bestu gallabuxurnar í verslunum núna

Hvað einkennir hinar fullkomnu gallabuxur? 

Bestu gallabuxurnar í verslunum núna

Fatastíllinn | 10. apríl 2025

Buxur sem eru háar upp og beinar niður eru alltaf …
Buxur sem eru háar upp og beinar niður eru alltaf klassískar.

Hvað einkennir hinar fullkomnu gallabuxur? 

Hvað einkennir hinar fullkomnu gallabuxur? 

Þær þurfa að vera vel sniðnar en það sem skiptir öllu máli er efnið sjálft. Gæðamikið gallaefni getur enst árum saman ef fólk fer vel með flíkina. Gæði haldast í hendur við verð í þessum efnum en góðar gallabuxur er ákveðin fjárfesting í dag. 

Svo er það hvernig buxur eru í tísku. Núna og síðustu ár hafa víðar buxur verið mest áberandi og halda því áfram þrátt fyrir hótanir úr ýmsum áttum um endurkomu þröngu buxnanna. Það er þó eitt snið sem er alltaf klassískt og klæðir flesta en það eru uppháar gallabuxur sem eru með beinum skálmum. 

Það er mikilvægt að máta gallabuxur til að finna gott snið sem passar. Gallabuxur með mikilli teygju eru yfirleitt þægilegri fyrst um sinn en endast mun styttra en efni sem kemst næst því að vera 100% bómull. Teygjan verður verri með tímanum og buxurnar geta farið að pokast á mismunandi stöðum. 

Vorið er góður tími til að fjárfesta í nýjum gallabuxum. Vertu opin fyrir buxum í ljósum litum eins og smjörgulum og kremlituðum því þær verður hægt að nota mikið í sumar við ýmis tilefni.

Hér fyrir neðan eru hugmyndir að gallabuxum sem eru til í íslenskum verslunum núna. Flestar eru klassískar, aðrar henta vel fyrir þennan árstíma og aðrar láta þig standa út úr.

Víðar gallabuxur úr Zöru sem kosta 7.995 kr.
Víðar gallabuxur úr Zöru sem kosta 7.995 kr.
Gallabuxur með lágu mitti frá Closed, fást í Mathildu og …
Gallabuxur með lágu mitti frá Closed, fást í Mathildu og kosta 49.990 kr.
Svargráar gallabuxur frá Isabel Marant, fást í Mathildu og kosta …
Svargráar gallabuxur frá Isabel Marant, fást í Mathildu og kosta 39.990 kr.
Gallabuxur úr Zöru sem kosta 5.995 kr.
Gallabuxur úr Zöru sem kosta 5.995 kr.
Ljósar gallabuxur úr Zöru sem kosta 6.995 kr. Hátt mitti, …
Ljósar gallabuxur úr Zöru sem kosta 6.995 kr. Hátt mitti, þröngar að ofan og útvíðar.
Dökkgráar gallabuxur frá Anine Bing, fást í Mathildu og kosta …
Dökkgráar gallabuxur frá Anine Bing, fást í Mathildu og kosta 44.990 kr. Miðlungs hátt mitti og beinar niður.
Beinar bláar gallabuxur með háu mitti. Þær eru frá Mother, …
Beinar bláar gallabuxur með háu mitti. Þær eru frá Mother, fást í Aftur og kosta 49.800 kr.
Svartar gallabuxur frá Mother, háar upp mittið og ná fyrir …
Svartar gallabuxur frá Mother, háar upp mittið og ná fyrir ofan ökkla. Fást í Aftur og kosta 42.700 kr.
Gallabuxur frá Ganni, fást í Andrá og kosta 35.900 kr.
Gallabuxur frá Ganni, fást í Andrá og kosta 35.900 kr.
Brúnar gallabuxur frá Stine Goya, fást í Andrá og kosta …
Brúnar gallabuxur frá Stine Goya, fást í Andrá og kosta 26.900 kr.
Reimaðar gallabuxur frá Rotate, fást í GK Reykjavík og kosta …
Reimaðar gallabuxur frá Rotate, fást í GK Reykjavík og kosta 49.995 kr.
Buxur með lágu mitti frá Diesel, fást í Galleri 17 …
Buxur með lágu mitti frá Diesel, fást í Galleri 17 og kosta 25.995 kr.
Ribcage gallabuxur frá Levi's, beinar niður og háar upp. Þær …
Ribcage gallabuxur frá Levi's, beinar niður og háar upp. Þær kosta 19.990 kr.
Kremaðar gallabuxur frá Selected sem kosta 16.990 kr.
Kremaðar gallabuxur frá Selected sem kosta 16.990 kr.
Dökkbláar gallabuxur með mjóu belti, fást í Vila og kosta …
Dökkbláar gallabuxur með mjóu belti, fást í Vila og kosta 11.990 kr.
Harper gallabuxur frá Agolde, fást í Andrá og kosta 49.990 …
Harper gallabuxur frá Agolde, fást í Andrá og kosta 49.990 kr. Miðlungsháar upp mittið og beinar skálmar.
Uppháar og útvíðar gallabuxur úr Zöru sem kosta 8.995 kr.
Uppháar og útvíðar gallabuxur úr Zöru sem kosta 8.995 kr.
mbl.is