Jillian Lauren, eiginkona Scott Shriner, bassaleikara hljómsveitarinnar Weezer, var skotin af lögreglumönnum í Los Angeles eftir að hafa blandað sér í mál lögreglu sem leitaði þriggja manna sem forðuðu sér af vettvangi umferðarslyss.

Lauren var í kjölfarið handtekin og kærð fyrir tilraun til manndráps.
Slúðurvefurinn TMZ greindi fyrstur frá málinu.
Lögreglumenn eltu einn hinna grunuðu inn í íbúðahverfi í borginni en sá er sagður hafa reynt að fela sig í bakgarði Lauren og Shriner. Þegar lögreglumenn komu inn í garðinn stóð Lauren þar með byssu í hendi.
Lauren, sem er þekktur rithöfundur, neitaði að leggja frá sér vopnið, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir frá lögreglu, og var á endanum skotin í öxlina.
Hún er ekki sögð lífshættulega slösuð.
Einn hinna grunuðu var handtekinn en umfangsmikil leit stendur nú yfir í borginni að hinum sem koma að málinu.