Erivo fækkaði fötum fyrir plötuumslagið

Poppkúltúr | 10. apríl 2025

Erivo fækkaði fötum fyrir plötuumslagið

Enska leik- og söngkonan Cynthia Erivo skilur lítið eftir fyrir ímyndunaraflið á plötuumslagi nýjustu breiðskífu hennar, titluð I Forgive You.

Erivo fækkaði fötum fyrir plötuumslagið

Poppkúltúr | 10. apríl 2025

Cynthia Erivo hefur átt afar mikilli velgengni að fagna síðustu …
Cynthia Erivo hefur átt afar mikilli velgengni að fagna síðustu mánuði og hreppti meðal annars tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Wicked. Ljósmynd/Theo Wargo

Enska leik- og söngkonan Cynthia Erivo skilur lítið eftir fyrir ímyndunaraflið á plötuumslagi nýjustu breiðskífu hennar, titluð I Forgive You.

Enska leik- og söngkonan Cynthia Erivo skilur lítið eftir fyrir ímyndunaraflið á plötuumslagi nýjustu breiðskífu hennar, titluð I Forgive You.

Erivo, sem sló rækilega í gegn í hlutverki grænu nornarinnar Elphöbu í söngvamyndinni Wicked á síðasta ári, frumsýndi umslagið á Instagram-síðu sinni fyrr í dag og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla lukku hjá aðdáendum hennar.

Á myndinni er Erivo allsber, með stóra hvíta vængi á bakinu og í glærum stígvélum með himinháum hælum.

Fjölmargar Hollywood-stjörnur hafa ritað athugasemdir við færslu Erivo, þar á meðal leikkonurnar Florence Pugh, Naomi Watts og Yvette Nicole Brown sem halda varla vatni yfir þessari einstaklega fallegu ljósmynd.

I Forgive You er önnur breiðskífa hinnar 38 ára gömlu Erivo. Platan er væntanleg þann 6. júní næstkomandi.



mbl.is