Óskarstilnefndum handritshöfundi gert að greiða 219 milljarða

Poppkúltúr | 10. apríl 2025

Óskarstilnefndum handritshöfundi gert að greiða 219 milljarða

Kviðdómur í New York dæmdi í gærdag Óskarstilnefnda handritshöfundinn og leikstjórann James Toback til að greiða 40 konum 1,68 milljarða bandaríkjadollara, sem samsvarar 219 milljörðum íslenskra króna, í skaðabætur vegna kynferðisafbrota.  

Óskarstilnefndum handritshöfundi gert að greiða 219 milljarða

Poppkúltúr | 10. apríl 2025

James Toback hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir handritið að kvikmyndinni …
James Toback hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir handritið að kvikmyndinni Bugsy árið 1991. Skjáskot/IMDb

Kviðdómur í New York dæmdi í gærdag Óskarstilnefnda handritshöfundinn og leikstjórann James Toback til að greiða 40 konum 1,68 milljarða bandaríkjadollara, sem samsvarar 219 milljörðum íslenskra króna, í skaðabætur vegna kynferðisafbrota.  

Kviðdómur í New York dæmdi í gærdag Óskarstilnefnda handritshöfundinn og leikstjórann James Toback til að greiða 40 konum 1,68 milljarða bandaríkjadollara, sem samsvarar 219 milljörðum íslenskra króna, í skaðabætur vegna kynferðisafbrota.  

Dómsúrskurðurinn er einn sá stærsti í sögu New York.  

Toback, sem er 80 ára gamall, var ekki viðstaddur réttarhöldin þar sem 40 konur báru vitnisburð um meinta kynferðislega áreitni Toback, en sumar ásakanirnar gegn honum ná rúmlega fjóra áratugi aftur í tímann.  

Mikilvæg skilaboð til valdamikilla einstaklinga

Lögmaður stefnenda, Brad Beckworth, ræddi við blaðamenn stuttu eftir að úrskurðurinn var kveðinn upp og sagði að hann vonaðist til að niðurstaðan ætti eftir að senda skýr skilaboð til valdamikilla einstaklinga „sem koma ekki fram við konur á viðeigandi hátt.“

„Þessi dómur snýst um réttlæti,“ sagði Beckworth að því er fram kemur á NPR.

„En það sem meira máli skiptir er að úrskurðurinn snýst um að taka valdið af misindismönnum – og þeim sem gera þeim kleift að misnota það – og skila því aftur til þeirra sem hann reyndi að stjórna og þagga niður í.“ 

 

mbl.is