Umboðsmaður bardagakappans og leikarans, Jean-Claude Van Damme, kemur honum til varnar eftir alvarlegar ásakanir á hendur honum er varða kynmök með mansalsfórnarlömbum.

Fyrir viku greindi CNN frá að krafa hafi verið lögð fram hjá embætti rannsókna á skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum í Rúmeníu þar sem Van Damme er gefið að sök að hafa sængað hjá fimm mansalsfórnarlömbum glæpasamtakanna Morel Bolea.
Rannsókn á málinu er þegar hafin.
Meint brot áttu sér stað í Cannes í Frakklandi á viðburði sem hann sjálfur stóð fyrir og konurnar, allt fyrirsætur, voru boðnar Van Damme sem „gjöf“, samkvæmt kærunni.
„Við höfum fengið vitneskju um greinar þar sem segir að meint brot í Cannes tengist herra Jean-Claude Van Damme,“ segir umboðsmaður Van Damme, Patrick Goavec, við tímaritið People.
„Ásakanirnar eru bæði gróteskar og eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum,“ bætir hann við.
Því er hins vegar haldið fram að Van Damme hafi haft vitneskju um ástand kvennanna, en líkt og gefur að skilja, er sagt að staða þeirra hafi verið afar viðkvæm.
Líkt og fram kemur á CNN þarf heimild fyrir málinu frá hæstarétti í Frakklandi og munu grunaðir verða sendir til Rúmeníu til yfirheyrslu.