Breskar poppstjörnur á Húsavík

Eurovision | 11. apríl 2025

Breskar poppstjörnur á Húsavík

Breska hljóm­sveit­in Rem­em­ber Monday, sem kepp­ir fyr­ir hönd Bret­lands í Eurovisi­on-söngv­akeppn­inni í ár, tók upp myndband við lagið Húsa­vík (My Homet­own) í dag.

Breskar poppstjörnur á Húsavík

Eurovision | 11. apríl 2025

Stúlkurnar í Rem­em­ber Monday ásamt stúlknakór á Húsavík í dag.
Stúlkurnar í Rem­em­ber Monday ásamt stúlknakór á Húsavík í dag. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Breska hljóm­sveit­in Rem­em­ber Monday, sem kepp­ir fyr­ir hönd Bret­lands í Eurovisi­on-söngv­akeppn­inni í ár, tók upp myndband við lagið Húsa­vík (My Homet­own) í dag.

Breska hljóm­sveit­in Rem­em­ber Monday, sem kepp­ir fyr­ir hönd Bret­lands í Eurovisi­on-söngv­akeppn­inni í ár, tók upp myndband við lagið Húsa­vík (My Homet­own) í dag.

Eins og kom fram á mbl.is í vikunni völdu meðlimir hljómsveitarinnar umrætt lag en allir þátttakendur gera ábreiðu af lagi að eigin vali sem verður birt á op­in­ber­um miðlum keppn­inn­ar. Óskuðu liðsmenn sveit­ar­inn­ar eft­ir því að fá að taka lagið upp í bæn­um ásamt barnakórn­um sem kom fram á Óskar­sverðlaun­un­um árið 2021.

mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Það hef­ur lengi verið draum­ur okk­ar að heim­sækja Húsa­vík,“ var haft eft­ir þeim Lauren Byr­ne, Holly Hull og Char­lotte Steele, liðsmönn­um hljóm­sveit­ar­inn­ar, í til­kynn­ingu fyrr í vikunni.

mbl.is