Eyjalífið fer fjölskyldunni einstaklega vel

Frægir ferðast | 11. apríl 2025

Eyjalífið fer fjölskyldunni einstaklega vel

Leikarinn og fjöllistamaðurinn Neil Patrick Harris er staddur í fríi með fjölskyldu sinni á Fídjíeyjum í Suður-Kyrrahafi um þessar mundir.  

Eyjalífið fer fjölskyldunni einstaklega vel

Frægir ferðast | 11. apríl 2025

Það væsir ekki um Neil Patrick Harris og fjölskyldu á …
Það væsir ekki um Neil Patrick Harris og fjölskyldu á Fídjíeyjum. Samsett mynd

Leikarinn og fjöllistamaðurinn Neil Patrick Harris er staddur í fríi með fjölskyldu sinni á Fídjíeyjum í Suður-Kyrrahafi um þessar mundir.  

Leikarinn og fjöllistamaðurinn Neil Patrick Harris er staddur í fríi með fjölskyldu sinni á Fídjíeyjum í Suður-Kyrrahafi um þessar mundir.  

Harris, sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt sem kvennabósinn Barney Stinson í bandarísku gamanþáttaröðinni How I Met Your Mother, gaf skemmtilega innsýn í fjölskyldufríið á Instagram-síðu sinni nú á dögunum og af myndum að dæma þá á eyjalífið ansi vel við Harris og fjölskyldu.  

Harris er kvæntur leikaranum og matreiðslumanninum David Burtka. Þeir gengu í hjónaband í september 2014 eftir tíu ára samband.

Harris og Burtka eignuðust tvíbura, Harper og Gideon, með aðstoð staðgöngumóður árið 2010 og hafa verið duglegir að sýna frá lífi fjölskyldunnar á samfélagsmiðlum síðustu ár. 

View this post on Instagram

A post shared by Neil Patrick Harris (@nph)

 

mbl.is