Raunveruleikaþáttastjarnan og hlaðvarpsþáttastjórnandinn Teddi Mellencamp segir föður sinn nú þegar byrjaðan að skipuleggja greftrun hennar aðeins nokkrum dögum eftir að hún fékk staðfest að krabbameinið sem hún berst við væri komið á fjórða stig.

Mellencamp, sem hefur komið fram í þáttunum The Real Housewives of Beverly Hills, segir föður sinn, rokkarann John Mellencamp, hafa hringt ellefu sinnum í sig á dögunum og þegar hún loksins svaraði sagðist hann vilja ganga úr skugga um að hún yrði grafin í fjölskyldugrafreitnum.
Hún segist jafnframt hafa spurt föður sinn hvort það yrði örugglega ekki pláss fyrir börnin hennar þrjú, Slate, sem er tólf ára, Cruz, tíu ára, og Dove, fimm ára, og á faðir hennar að hafa svarað því játandi.
Börnin á Mellencamp með fyrrverandi eiginmanni sínum Edwin Arroyave, en hún sótti um skilnað í nóvember 2024.
Í tvö ár hefur Mellencamp barist við sortuæxli og alls sautján blettir verið fjarlægðir af húð hennar. Það var svo í febrúar sem hún greindi frá að fjöldi æxla hefðu fundist í heilanum eftir að hún hafði verið með slæman höfuðverk í nokkrar vikur. Fjögur þeirra voru fjarlægð.
Í mars kom fram að þrjú æxli til viðbótar hefðu fundist í heila hennar og tvö í lungum, sem hún segir beina afleiðingu sortuæxlisins. Hún staðfesti einnig að meinið væri komið á fjórða stig.