Gullfalleg íbúð til leigu í miðbæ Reykjavíkur

Gullfalleg íbúð til leigu í miðbæ Reykjavíkur

Í miðbæ Reykjavíkur er gullfalleg og einstaklega smekklega innréttuð þakíbúð til skammtímaleigu. Íbúðin er auglýst til leigu á vefsíðunni AirBnb. Vandað hefur til verka og augljóst er að sá sem innréttaði íbúðina er með gott auga. 

Gullfalleg íbúð til leigu í miðbæ Reykjavíkur

Suðurland í öllu sínu veldi | 11. apríl 2025

Smekklegt og stílhreint fyrir augað.
Smekklegt og stílhreint fyrir augað. Skjáskot/AirBnb

Í miðbæ Reykjavíkur er gullfalleg og einstaklega smekklega innréttuð þakíbúð til skammtímaleigu. Íbúðin er auglýst til leigu á vefsíðunni AirBnb. Vandað hefur til verka og augljóst er að sá sem innréttaði íbúðina er með gott auga. 

Í miðbæ Reykjavíkur er gullfalleg og einstaklega smekklega innréttuð þakíbúð til skammtímaleigu. Íbúðin er auglýst til leigu á vefsíðunni AirBnb. Vandað hefur til verka og augljóst er að sá sem innréttaði íbúðina er með gott auga. 

Íbúðin er staðsett í rólegri byggingu og er með einu svefnherbergi. Það er hins vegar hægt að koma til móts við foreldra sem eru að ferðast með barn. 

Steyptir, hráir veggir í ljósgráum lit skapa þægilegt andrúmsloft. Á móti koma stórar mottur, ljósbrúnir litatónar og stílhrein húsgögn með hlýleika inn í íbúðina.

Þó að íbúðin sé eflaust markaðssett meira til erlendra ferðamanna þá gæti hún verið fullkomin fyrir þá sem vilja kíkja til Reykjavíkur í helgarferð.

Opið er úr eldhúsi og inn í stofuna.
Opið er úr eldhúsi og inn í stofuna. Skjáskot/AirBnb
Svefnherbergið er rúmgott.
Svefnherbergið er rúmgott. Skjáskot/AirBnb
Íbúðin er máluð í hlýlegum litatón sem passar vel við …
Íbúðin er máluð í hlýlegum litatón sem passar vel við hráu steyptu veggina. Skjáskot/AirBnb
Notalegt baðherbergi.
Notalegt baðherbergi. Skjáskot/AirBnb
Það er allt til alls í eldhúsinu.
Það er allt til alls í eldhúsinu. Skjáskot/AirBnb
mbl.is