Helstu tískustraumarnir fyrir vorið

Fatastíllinn | 12. apríl 2025

Helstu tískustraumarnir fyrir vorið

Vorið er komið með bjartara veðri og nýjum fatnaði. Vortískan er fjölbreytt að þessu sinni og ættu flestir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Það sem stendur helst upp úr eru ofurkonudragtir, praktískir jakkar, drungaleg bóhemföt og hlýrabolir með U-hálsmáli.

Helstu tískustraumarnir fyrir vorið

Fatastíllinn | 12. apríl 2025

Rabanne, The Attico, Hermés og Stella McCartney.
Rabanne, The Attico, Hermés og Stella McCartney. Samsett mynd

Vorið er komið með bjartara veðri og nýjum fatnaði. Vortískan er fjölbreytt að þessu sinni og ættu flestir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Það sem stendur helst upp úr eru ofurkonudragtir, praktískir jakkar, drungaleg bóhemföt og hlýrabolir með U-hálsmáli.

Vorið er komið með bjartara veðri og nýjum fatnaði. Vortískan er fjölbreytt að þessu sinni og ættu flestir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Það sem stendur helst upp úr eru ofurkonudragtir, praktískir jakkar, drungaleg bóhemföt og hlýrabolir með U-hálsmáli.

Litli hlýrabolurinn

Hlýrabolur er flík sem leynist í öllum fataskápum en hefur yfirleitt verið í hlutverki aukaleikarans. Nú er það breytt. Hlýrabolir með U-hálsmáli, helst hvítir, voru mjög áberandi hjá tískuhúsum eins og Dior, Stellu McCartney og Rabanne. Þá voru þeir helst stíliseraðir við fínni pils eða víðar buxur.

Rabanne.
Rabanne. Ljósmynd/Rabanne
Schiaparelli.
Schiaparelli. Ljósmynd/Schiaparelli
Stella McCartney.
Stella McCartney. Ljósmynd/Stella McCartney
Christian Dior.
Christian Dior. Ljósmynd/Dior
Prabal Gurung.
Prabal Gurung. Ljósmynd/Prabal Gurung

Dökkur bóhemstíll

Það hefur verið svolítill gotneskur fílingur í tískuheiminum í svolítinn tíma. Frjálslyndur en dökkur bóhemklæðnaður fyrir næsta vor var áberandi á tískupöllunum hjá tískuhúsum eins og Saint Laurent, Chloé, Rodarte og Valentino. Þetta kom fram í svörtu blúnduefni, dökkum blómamynstruðum kjólum og síðum pilsum. Leðurjökkum í stórri stærð var síðan skellt yfir. 

Valentino.
Valentino. Ljósmynd/Valentino
Standing Ground.
Standing Ground. Ljósmynd/Standing Ground
Rodarte.
Rodarte. Ljósmynd/Rodarte
Saint Laurent.
Saint Laurent. Ljósmynd/Saint Laurent
Saint Laurent.
Saint Laurent. Ljósmynd/Saint Laurent
Chloé.
Chloé. Ljósmynd/Chloé
Chloé.
Chloé. Ljósmynd/Chloé

Íþróttaföt 

Íþróttaheimurinn hefur haft mikil áhrif á tískuna og sáust áhrif þess vel í vor- og sumarlínunum. Praktískir jakkar frá ítölsku tískuhúsunum The Attico og Miu Miu verða eftirsóttir og án efa seljast hratt upp. Þessari bylgju fylgja aðeins þægindi og það er alveg hægt að sætta sig við það.

Ralph Lauren.
Ralph Lauren. Ljósmynd/Ralph Lauren
The Attico.
The Attico. Ljósmynd/The Attico
The Attico.
The Attico. Ljósmynd/The Attico
Miu Miu.
Miu Miu. Ljósmynd/Miu Miu
Miu Miu.
Miu Miu. Ljósmynd/Miu Miu
Tommy Hilfiger.
Tommy Hilfiger. Ljósmynd/Tommy Hilfiger

Skátaklæðnaður

Buxur, blússur eða jakkar sem minna helst á skátana í ljósbrúnum eða dökkgrænum lit sáust hjá tískuhúsum eins og Hermés, Sacai, Brandon Maxwell og Mugler. Þetta eru föt sem passa við margt og hafa mikið notagildi. Ætli svona flíkur leynist ekki í fataskápnum nú þegar?

Isabel Marant.
Isabel Marant. Ljósmynd/Isabel Marant
Hermés.
Hermés. Ljósmynd/Hermés
Hermés.
Hermés. Ljósmynd/Hermés
Sacai.
Sacai. Ljósmynd/Sacai
Brandon Maxwell.
Brandon Maxwell. Skjáskot/Instagram
Mugler.
Mugler. Ljósmynd/Mugler

Nýja dragtin

Klæðskerinn nýtur sín í nýrri dragtartísku vorsins en þar voru axlapúðar, plíseraðar buxur og jakkar í yfirstærð mjög áberandi. Hjá Saint Laurent komu margar flottar hugmyndir fram en dragtirnar voru stíliseraðar með bómullarskyrtu og bindi. Það þarf ekki að fara alla leið en jakki í þessum stíl kemur þér mjög langt. 

Saint Laurent.
Saint Laurent. Ljósmynd/Saint Laurent
Saint Laurent.
Saint Laurent. Ljósmynd/Saint Laurent
Saint Laurent.
Saint Laurent. Ljósmynd/Saint Laurent

Skraut og fiður

Það er ástæða til að finna sér tilefni til að klæða sig upp í föt skreytt fjöðrum eða öðrum kristöllum. Rabanne, 16a Arlington, Prada og Louis Vuitton voru með kjóla, jakka eða pils í þessum stíl og var skrautið mjög fjölbreytt. Það má einnig alveg leika sér með þetta heima og hressa upp á eldri flíkur í leiðinni.

16a Arlington.
16a Arlington. Ljósmynd/16a Arlington
Louis Vuitton.
Louis Vuitton. Ljósmynd/Louis Vuitton
Rabanne.
Rabanne. Ljósmynd/Rabanne
Prada.
Prada. Ljósmynd/Prada

Köflótt

Köflóttar flíkur eru oftast tengdar við hausttískuna en þær koma sterkar inn nú í vor. Það er svolítill pönkarafílingur tengdur mynstrinu sem verður áberandi í kjólum eða víðum skyrtum. Leitaðu innblásturs til tískuhúsa eins og Acne Studios, Bottega Veneta og Collina Strada.

Collina Strada.
Collina Strada. Ljósmynd/Collina Strada
Mossi.
Mossi. Ljósmynd/Mossi
Bottega Veneta.
Bottega Veneta. Ljósmynd/Bottega Veneta
Acne Studios.
Acne Studios. Ljósmynd/Acne Studios
Acne Studios.
Acne Studios. Ljósmynd/Acne Studios
mbl.is