Góð leið til að fegra það sem guð gaf

Snyrtivörur | 13. apríl 2025

Góð leið til að fegra það sem guð gaf

Bjartar íslenskar sumarnætur kalla á milda og heillandi liti sem fegra það sem guð gaf. Þetta veit Ammy Drammeh förðunarmeistari sem hannaði vorlínuna fyrir Chanel. Förðunarlínan er samsett af fjórum litum sem paraðir eru saman til að draga fram það besta.

Góð leið til að fegra það sem guð gaf

Snyrtivörur | 13. apríl 2025

Ferskjulitaður fer vel með sólkysstri húð.
Ferskjulitaður fer vel með sólkysstri húð. Ljósmynd/Chanel

Bjartar íslenskar sumarnætur kalla á milda og heillandi liti sem fegra það sem guð gaf. Þetta veit Ammy Drammeh förðunarmeistari sem hannaði vorlínuna fyrir Chanel. Förðunarlínan er samsett af fjórum litum sem paraðir eru saman til að draga fram það besta.

Bjartar íslenskar sumarnætur kalla á milda og heillandi liti sem fegra það sem guð gaf. Þetta veit Ammy Drammeh förðunarmeistari sem hannaði vorlínuna fyrir Chanel. Förðunarlínan er samsett af fjórum litum sem paraðir eru saman til að draga fram það besta.

Augnskuggalínan Ombre Essentielle býður upp á hæfilegt magn af augnskugga. Liturinn Menthe Á L'Eau er grængrár og fer vel á augnloki. Hann gefur hálfgerða perluáferð en þegar vatnsheldur blýantur í grænum lit er notaður með virkar liturinn sterkari. Það mætti til dæmis setja græna vatnshelda blýantinn á augnlokið og blanda honum þannig að hann myndi ákveðið form á augnlokinu og setja svo augnskuggann sjálfan yfir.

Það er aðeins misjafnt eftir formi augnlokanna hvað fer hverjum best en flestir þrá að láta augun virka stærri og vígalegri. Ferskjulitaði augnskugginn Péche Glacée er fyrir þær sem eru alltaf svolítið sólbrúnar og seiðandi á meðan fjólublái liturinn Mauve Sucré ýtir undir fegurð föla fólksins. Þeir sem vilja fara öruggu leiðina velja Latte Frappé sem er mildur brúnbleikur litur. Vatnsheldu blýantarnir koma í fjórum litum; rauðbleikum, fjólubláum, brúnfjólubláum og grænum. Vatnsheldur augnblýantur í einhverjum af þessum litum gefur mýkra yfirbragð en ef svartur eða brúnn er notaður. Þessi lína býður upp á meiri leik og meira fjör.

Í línunni eru tveir naglalakkslitir, ferskjulitur og grágrænn, sem fara vel við öll ljósu fötin sem við förum að klæðast fyrr en ykkur grunar.

Þetta eru litir í stíl við íslenska sólsetrið.
Þetta eru litir í stíl við íslenska sólsetrið.
Bleikir varalitir þykja stundum svolítið frúarlegir. Hér sést hins vegar …
Bleikir varalitir þykja stundum svolítið frúarlegir. Hér sést hins vegar hvernig má nota þá án þess að verða eins og kerlingin sem þú vilt ekki vera. Ljósmynd/Chanel
Hér eru fjórir augnskuggar samankomnir fyrir fólk sem vill ekki …
Hér eru fjórir augnskuggar samankomnir fyrir fólk sem vill ekki vera með of áberandi augnmálningu en samt með smá svip.
Það er hægt að fríska upp á sig með björtum, …
Það er hægt að fríska upp á sig með björtum, bleikum litum. Ljósmynd/Chanel
Hér notar förðunarfræðingurinn fingurna til að ná fram réttri áferð …
Hér notar förðunarfræðingurinn fingurna til að ná fram réttri áferð á augnskugganum. Ljósmynd/Chanel
Áferðin á varalitunum er örlítið glansandi.
Áferðin á varalitunum er örlítið glansandi. Ljósmynd/Chanel
Þennan ferskjulitaða varalit verður að hafa í veskinu í sumar.
Þennan ferskjulitaða varalit verður að hafa í veskinu í sumar.
mbl.is