Tíu flottir dragtarjakkar í verslunum núna

Fatastíllinn | 13. apríl 2025

Tíu flottir dragtarjakkar í verslunum núna

Vel sniðinn dragtarjakki fer með þig langa leið. Hann getur nýst við ótal mörg tilefni, passar við svo margt og er eins og traustur vinur í skápnum. Nú er breitt úrval af þeim í verslunum hér á landi, á mismunandi verðbili og í fjölbreyttum litum.

Svartur dragtarjakki ætti að vera í öllum fataskápum. Hann má nota yfir hvíta stuttermaboli og gallabuxur í vinnuna og háa hæla síðar sama kvöld. En nú þegar er farið að vora þá má líka alveg líta á bjartari liti.

Smjörgulur, tómatrauður og ólífugrænn verða áberandi í sumar. En litir eins og ljósgrár og drapplitaður eru alltaf klassískir og nýtast þér næstu ár.

Hér fyrir neðan eru tíu flottir dragtarjakkar sem fást í verslunum núna.

Smjörgulur hörjakki úr Cos sem kostar 35.000 kr.
Smjörgulur hörjakki úr Cos sem kostar 35.000 kr.
Tómatrauður jakki frá Saint Tropez, fæst í Karakter og Companys …
Tómatrauður jakki frá Saint Tropez, fæst í Karakter og Companys og kostar 12.995 kr.
Ljósgrár jakki frá the.garment, fæst í Andrá og kostar 85.900 …
Ljósgrár jakki frá the.garment, fæst í Andrá og kostar 85.900 kr.
Svartur jakki frá Munthe, fæst í Kultur og kostar 49.995 …
Svartur jakki frá Munthe, fæst í Kultur og kostar 49.995 kr.
Svartur jakki með hvítum smáatriðum frá Stine Goya, fæst í …
Svartur jakki með hvítum smáatriðum frá Stine Goya, fæst í Andrá og kostar 51.900 kr.
Jakki frá Birgitte Herskind, fæst hjá FOU22 og kostar 58.900 …
Jakki frá Birgitte Herskind, fæst hjá FOU22 og kostar 58.900 kr.
Ólífugrænn jakki úr Zöru sem kostar 15.995 kr.
Ólífugrænn jakki úr Zöru sem kostar 15.995 kr.
Dökkblár jakki frá Closed, fæst í Mathildu og kostar 74.990 …
Dökkblár jakki frá Closed, fæst í Mathildu og kostar 74.990 kr.
Ljós jakki með axlapúðum, fæst í Zöru og kostar 11.995 …
Ljós jakki með axlapúðum, fæst í Zöru og kostar 11.995 kr.
Ljósbrúnn dragtarjakki frá Second Female, fæst hjá FOU22 og kostar …
Ljósbrúnn dragtarjakki frá Second Female, fæst hjá FOU22 og kostar 29.900 kr.
mbl.is