Vinnubrögð ráðherra gagnrýnd

Veiðigjöld | 16. apríl 2025

Vinnubrögð ráðherra gagnrýnd

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gagnrýna vinnubrögð og málatilbúnað Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra við gerð frumvarpsdraga um hækkun veiðigjalda. Þar er bæði vikið að formlegum kröfum, sem gera verði til stjórnarfrumvarpa, og efnislegum þáttum og forsendum þess.

Vinnubrögð ráðherra gagnrýnd

Veiðigjöld | 16. apríl 2025

Hanna Katrín Friðriksson er ráðherra atvinnuveganna.
Hanna Katrín Friðriksson er ráðherra atvinnuveganna. mbl.is/María Matthíasdóttir

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gagnrýna vinnubrögð og málatilbúnað Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra við gerð frumvarpsdraga um hækkun veiðigjalda. Þar er bæði vikið að formlegum kröfum, sem gera verði til stjórnarfrumvarpa, og efnislegum þáttum og forsendum þess.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gagnrýna vinnubrögð og málatilbúnað Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra við gerð frumvarpsdraga um hækkun veiðigjalda. Þar er bæði vikið að formlegum kröfum, sem gera verði til stjórnarfrumvarpa, og efnislegum þáttum og forsendum þess.

Þetta kemur fram í ítarlegri 69 síðna umsögn SFS um frumvarpsdrögin, en henni fylgdu greiningar og álit frá KPMG, Jakobsson Capital og norsku lögmannsstofunni Wikborg Rein, sem SFS segja að hafi verið nauðsynlegt að láta vinna; ráðherra hafi vanrækt þær skyldur.

SFS færa rök fyrir því að fyrirætlanir ráðherra gangi í berhögg við stjórnarskrá, brjóti gegn jafnræði og meðalhófi, og byggist á óraunhæfum forsendum, svo sem verði á uppboðsmörkuðum sem ekki endurspegli raunverðmæti afla.

mbl.is