Ragnhildur Sveinsdóttir pílates-kennari hefur sett einbýlishús sitt við Þernunes 6 í Arnarnesinu í Garðabæ á sölu. Um er að ræða 483 fm einbýli sem reist var 2008. Húsið státar af einstöku útsýni út á sjó. Ragnhildur bjó í húsinu ásamt fyrrverandi kærasta sínum, Guðmundi Erni Þórðarsyni fjárfesti en upp úr sambandi þeirra slitnaði í fyrra.

Hátt er til lofts í húsinu og vítt til veggja. Í því eru sérsmíðaðar innréttingar og allur sá munaður sem hinir efnameiri þrá.
„Komið er inn í mjög bjart og flott anddyri með gólfsíðum gluggum og mikið og gott skápapláss. Öll aðalhæð hússins er með sérsmíðum innréttingum, steingólfi, gólfhita og innfelldri lýsingu. Inn af anddyri er gestasalerni, flísalagt og með opnanlegum glugga, handlaug og upphengdu salerni. Frá anddyri er líka gengið inn í tvöfaldan bílskúr, þar er gott skápapláss, flísar á gólfi og rafdrifnar bílskúrshurðir. Stofa, borðstofa og eldhús er í mjög glæsilegu opnu alrými með gólfsíðum gluggum allri sjávar hliðinni, þar er óhindrað útsýni til sjávar, að borginni og víðar. Hátt til lofts, innbyggð lýsing og innbyggt hátalarakerfi. Eldhúsið er vel búið tækjum, vönduð innbyggð tæki, tveir ísskápar með frystir, uppþvottavél og tveir ofnar í vinnuhæð ásamt kaffivél. Á eyjunni er gashelluborð, undirlímdur vaskur og gott vinnu- og skápapláss. Fyrir innan eldhús, þar er sjónvarpsherbergi, þar fyrir aftan er skrifstofuaðstaða og þar við hlið er fataherbergi. Hjónasvítan er rúmgóð með útgengi út á lóð og aðgengi inn á baðherbergi, flísar á bæði gólfi og á veggjum. Innrétting með tveimur handlaugum, gott skúffupláss og stórum spegli með lýsingu. Upphengt salerni, handklæðaofn og tvær sturtur,“ segir í fasteignaauglýsingu á mbl.is.