„Mikilvægt er að hafa í huga að börnin stækka og þroskast á ógnarhraða“

Heimili | 20. apríl 2025

„Mikilvægt er að hafa í huga að börnin stækka og þroskast á ógnarhraða“

Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður á tvo drengi sem fæddust með stuttu millibili. Barnaherbergin á heimilinu eru guðdómleg en að mati Grímu eru þau í minna lagi. Hún ákvað að nýta svæði fyrir framan herbergin í opið leiksvæði.

„Mikilvægt er að hafa í huga að börnin stækka og þroskast á ógnarhraða“

Heimili | 20. apríl 2025

Gríma Björg Thorarensen er innanhúshönnuður og hefur mikla ánægju af …
Gríma Björg Thorarensen er innanhúshönnuður og hefur mikla ánægju af því að hanna barnaherbergi. Samsett mynd

Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður á tvo drengi sem fæddust með stuttu millibili. Barnaherbergin á heimilinu eru guðdómleg en að mati Grímu eru þau í minna lagi. Hún ákvað að nýta svæði fyrir framan herbergin í opið leiksvæði.

Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður á tvo drengi sem fæddust með stuttu millibili. Barnaherbergin á heimilinu eru guðdómleg en að mati Grímu eru þau í minna lagi. Hún ákvað að nýta svæði fyrir framan herbergin í opið leiksvæði.

„Ég á tvo stráka, sá eldri er fjögurra ára og sá yngri þriggja ára. Þeir eiga hvor sitt svefnherbergið en þar sem herbergin þeirra eru í minna lagi þá nýtti ég opið svæði fyrir framan herbergin í leiksvæði tileinkað þeim. Ég lagði því mikla áherslu á að svefnherbergin þeirra yrðu notalegur staður þar sem þeir væru í ró,“ segir Gríma.

„Það gerði ég með því að teppaleggja, nota milda liti í bland við skemmtilegt veggfóður, góðar gardínur sem dimma vel á sumarkvöldum og notalega lýsingu sem nýtist vel í skammdeginu. Á leiksvæðinu voru áherslurnar aðrar en þar vildi ég að þeir hefðu gott aðgengi að dótinu sínu sem er í körfum í opnum hillum. Ég vildi líka að gólfplássið væri gott. Þar fá þeir frelsi til þess að búa sér til sinn heim og þurfa ekkert endilega að ganga frá í lok hvers dags ef leikurinn er spennandi.“

Hvaðan fékkstu innblástur?

„Frá strákunum mínum. Ég leyfði þeim að taka þátt í litavali og hannaði herbergin út frá þeirra karakter og áhugasviði.“

Hvað ertu ánægðust með?

„Ég er virkilega ánægð með þá ákvörðun að hafa gert leiksvæðið, sem er mikið notað. Þannig eru ekki leikföng um allt gólf eða mikið áreiti inni í svefnherbergjunum þegar þeir fara að sofa, sem hefur góð áhrif á svefninn þeirra.“

Barnaherbergi skemmtileg áskorun

Verða barnaherbergi að vera í takt við önnur herbergi hússins?

„Nei, það finnst mér ekki, barnaherbergi á að endurspegla karakterinn sem það er tileinkað. Þar gefst okkur tækifæri til þess að nota hugmyndaflugið og búa til heim þar sem barninu líður vel. Þar skiptir ekki jafn miklu máli að allt passi vel saman, heldur eiga barnaherbergi að vera ævintýraleg og afslöppuð en á sama tíma líka hlýleg og notaleg.“

Hvaða litir henta vel í barnaherbergi?

„Allir litir. En ég vel vanalega að nota milda, náttúrulega tóna af lit í grunninn á barnaherbergjum, hvort sem það er bleikur, gulur, grænn, blár eða annað, og forðast frekar að nota skæra og æpandi liti á stóra fleti. Aftur á móti er ég óhrædd við að nota skemmtilega æpandi liti inn á milli og í minna magni.“

Að hanna barnaherbergi er með því skemmtilegra sem Gríma gerir. „En þau eru líka frábær áskorun að því leyti að þar læt ég reyna á hugmyndaflugið á annan hátt en vanalega. Svo eru börnin hreinskilnustu dómararnir svo það er eins gott að maður standi sig.“

Hvað eru helstu mistökin sem fólk gerir þegar barnaherbergi eru annars vegar?

„Ég veit ekki hvort þetta séu beint mistök, en mögulega það að ganga of langt í einhverju sérstöku þema í barnaherberginu. Mikilvægt er að hafa í huga að börnin stækka og þroskast á ógnarhraða og áhugamálin í takt við það. Þá er ég er hlynntari því að vinna með opið þema sem er ekki jafn augljóst og leyfir hugmyndaflugi barnanna að fara á flug.“

Ertu með sniðug ráð til þeirra sem eru að byrja að spá í barnaherbergi?

„Fyrst og fremst að hafa gaman og leyfa barninu að taka virkan þátt í ferlinu. Vera óhrædd við að blanda saman litum, mynstrum og áferðum. En þrátt fyrir að við séum að búa til ævintýralegt og spennandi barnaherbergi þá er þetta líka svefnstaður barnsins. Það er því gott að hafa í huga að áreitið sé ekki of mikið og umfram allt að barninu líði vel.“

Gríma lék sér með veggfóður í svefnherbergjunum á móti mildum …
Gríma lék sér með veggfóður í svefnherbergjunum á móti mildum litum.
Guðdómleg litasamsetning og skemmtilegir munir.
Guðdómleg litasamsetning og skemmtilegir munir.
Fólk ætti að hafa börnin með í ráðum við hönnun …
Fólk ætti að hafa börnin með í ráðum við hönnun herbergja þeirra að mati Grímu.
Drengirnir ná auðveldlega í leikföngin sem eru geymd í körfum …
Drengirnir ná auðveldlega í leikföngin sem eru geymd í körfum og opnum hirslum.
mbl.is