Ríkisstjórnin fundar á Þingvöllum

Alþingi | 22. apríl 2025

Ríkisstjórnin fundar á Þingvöllum

Ríkisstjórnin situr nú fund í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum sem mun standa yfir fram á seinni part dags.

Ríkisstjórnin fundar á Þingvöllum

Alþingi | 22. apríl 2025

Vinnufundurinn svokallaði er haldinn í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum, segir aðstoðarmaður …
Vinnufundurinn svokallaði er haldinn í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum, segir aðstoðarmaður ráðherra. mbl.is/Sigurður Bogi

Ríkisstjórnin situr nú fund í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum sem mun standa yfir fram á seinni part dags.

Ríkisstjórnin situr nú fund í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum sem mun standa yfir fram á seinni part dags.

Ólafur Kjaran Árnason, aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Hann segir að um „vinnufund“ sé að ræða. Ekki feng­ust hins veg­ar upp­lýs­ing­ar um hvaða mál yrðu á dag­skrá. 

Ríkisstjórnin hafi byrjað daginn á ríkisstjórnarfundi í morgun, þar sem einu málin á dagskrá sneru að annars vegar Alþjóðaframfarastofnun og hins vegar að skoðanakönnun um utanríkismál.

Ólafur segir að vinnufundurinn muni að öllum líkindum standa yfir fram á seinni part dags.

Einn ráðherra sé fjarverandi vegna veikinda. Tveir aðrir séu erlendis: Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Seinast hélt stjórnin vinnufund á Þingvöllum þann 3. janúar, en þá var stjórnin nýmynduð.

mbl.is