Tígriskóngurinn Joe Exotic giftir sig aftur

Poppkúltúr | 22. apríl 2025

Tígriskóngurinn Joe Exotic giftir sig aftur

Joe Exotic, betur þekktur sem Tiger King, giftist samfanga sínum í gær. Exotic setti inn færslu á samfélagsmiðilinn X og deildi þar ást sinni á Jorge Flores Maldonado.

Tígriskóngurinn Joe Exotic giftir sig aftur

Poppkúltúr | 22. apríl 2025

Samfangarnir og hjónin Jorge og Joseph Maldonado.
Samfangarnir og hjónin Jorge og Joseph Maldonado. Skjáskot/Instagram

Joe Exotic, betur þekktur sem Tiger King, giftist samfanga sínum í gær. Exotic setti inn færslu á samfélagsmiðilinn X og deildi þar ást sinni á Jorge Flores Maldonado.

Joe Exotic, betur þekktur sem Tiger King, giftist samfanga sínum í gær. Exotic setti inn færslu á samfélagsmiðilinn X og deildi þar ást sinni á Jorge Flores Maldonado.

Tilkynningunni fylgdi mynd af Exotic, sem heitir réttu nafni Joseph Maldonado, og Jorge, áður Jorge Marquez, sem sýndi þá klædda í samsvarandi jakkaföt með hvítar hafnaboltahúfur með blómaboga og grænan bakgrunn. 

Hinn 62 ára gamli Exotic sagði frá trúlofun þeirra í október á síðasta ári en á þeim tíma skrifaði hann um unnusta sinn: „Hann er svo magnaður og er frá Mexíkó.“ Nú rétt um sex mánuðum síðar eru þeir gengnir í hnapphelduna.

Exotic afplánar nú 21 árs dóm fyrir morðtilraun á keppinaut sínum, Carole Baskin, ásamt því var hann sakfelldur fyrir illa meðferð á dýrum. Hann hefur áfrýjað þeim dómi. 

Exotic var áður giftur Travis Maldonado, en samband þeirra kom fyrir í Netflix-þáttunum Tiger King, en Travis lést af slysaskoti í október 2017. Einungis mánuði síðar giftist Exotic Dillon Passage, en það hjónaband kemur einnig fram í þáttunum. Hjónabandinu lauk 2021 þegar Exotic fór bak við lás og slá.

Page Six

mbl.is