Íslenskur lögreglumaður sýndi listir sínar á körfuboltavellinum

TikTok | 25. apríl 2025

Skemmtilegt myndskeið sem sýnir íslenskan lögreglumann spila körfubolta við ungan dreng á útivelli við Fellaskóla hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlasíðunni TikTok síðustu daga.

Þetta var hörkuleikur!
Þetta var hörkuleikur! Samsett mynd

Skemmtilegt myndskeið sem sýnir íslenskan lögreglumann spila körfubolta við ungan dreng á útivelli við Fellaskóla hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlasíðunni TikTok síðustu daga.

Skemmtilegt myndskeið sem sýnir íslenskan lögreglumann spila körfubolta við ungan dreng á útivelli við Fellaskóla hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlasíðunni TikTok síðustu daga.

Eins og sést í myndskeiðinu þá skiptast ungi drengurinn og lögreglumaðurinn á við að sýna listir sínar er þeir keppast við að ná boltanum og skjóta á körfuna.

Hópur ungra drengja og annar lögreglumaður sjást standa á hliðarlínunni og fylgjast með leiknum og eru flestir með símann á lofti til að festa þetta skemmtilega augnablik á filmu.

Hátt í 20 þúsund manns hafa horft á myndbandið og tæplega 900 manns hafa lækað við það.

mbl.is