Áttu bókað til Rómar? Hvað þarf að hafa í huga

Borgarferðir | 27. apríl 2025

Áttu bókað til Rómar? Hvað þarf að hafa í huga

Á næstu vikum geta ferðamenn sem eiga bókað til Rómar upplifað borgina á sögulegu augnabliki. Í kjölfar andláts Frans páfa verða settar verklagsreglur, ásamt röð trúarlegra athafna, sem geta haft áhrif á ferðaáætlanir fólks.

Áttu bókað til Rómar? Hvað þarf að hafa í huga

Borgarferðir | 27. apríl 2025

Samsett mynd/Edoardo Cuoghi /YASUYOSHI CHIBA / AFP

Á næstu vikum geta ferðamenn sem eiga bókað til Rómar upplifað borgina á sögulegu augnabliki. Í kjölfar andláts Frans páfa verða settar verklagsreglur, ásamt röð trúarlegra athafna, sem geta haft áhrif á ferðaáætlanir fólks.

Á næstu vikum geta ferðamenn sem eiga bókað til Rómar upplifað borgina á sögulegu augnabliki. Í kjölfar andláts Frans páfa verða settar verklagsreglur, ásamt röð trúarlegra athafna, sem geta haft áhrif á ferðaáætlanir fólks.

Frans páfi, sem fæddist í Argentínu, lést mánudaginn 21. apríl vegna heilablóðfalls sem olli hjartabilun og dái, líkt og fram kom í tilkynningu frá Vatíkaninu.

Fólk í biðröð á St. Péturstorginu með regnhlífar og bíður …
Fólk í biðröð á St. Péturstorginu með regnhlífar og bíður eftir að komast í basilíkuna til að votta Fransi páfa virðingu sína. Tiziana FABI / AFP

Sixtínska kapellan lokuð

Sixtínska kapellan verður lokuð almenningi í meira en viku á meðan kosið er um nýjan páfa.

Búist er við að mannfjöldi og biðraðir við Vatíkanið verði óvanalega miklar, sérstaklega í ljósi þess að afmælisár kaþólsku kirkjunnar 2025 er þegar farið að laða að gesti.

Helstu ferðamannastaðir Rómar, innan Vatíkansins, verða undirlagðir af sorgar- og endurkjörsferli. Um 15-20 dögum eftir andlátið hefst sögufrægt ferli til að ákvarða næsta páfa. Á þeirri trúnaðarsamkomu verða rómversk-kaþólskir kardínálar lokaðir inni í Sixtínsku kapellunni þar til ákvörðun hefur verið tekin.

Loftmynd innan úr Sixtínsku kapellunni.
Loftmynd innan úr Sixtínsku kapellunni. Calvin Craig/Unsplash

Þá munu úrslit atkvæðagreiðslunnar annaðhvort verða tilkynnt með reyk úr strompi kapellunnar, svörtum fyrir ófullnægjandi og hvítum fyrir árangursríka kosningu.

Viku áður verður kapellunni, sem prýdd er freskum Michelangelos, lokað og fram yfir tímann sem ákvörðun hefur verið tekin. 

Vatíkansöfnin verða hins vegar áfram opin almenningi, fyrir utan 26. apríl, sem er sorgardagur vegna jarðarfarar Frans páfa. Þá verður ferðum um Necropolis Via Triumphalis og Vatíkangarðana frestað af öryggisástæðum.

Péturskirkjan úr fjarlægð.
Péturskirkjan úr fjarlægð. Brent Pace/Unsplash

„Einu sinni á bláu tungli“

Miðar eru óendurkræfir og ekki er hægt að breyta dagsetningum á keyptum miðum. Hafi miðar verið keyptir af þriðja aðila ber að hafa samband við ferðaþjónustufyrirtækið sem seldi þá.

Ferðamenn geta búist við takmörkuðum aðgangi að Péturskirkjunni þar sem lík Frans páfa liggur. Um þessar mundir þegar syrgjendur flykkjast að til að votta páfanum virðingu er hægt að búast við löngum röðum og mikilli öryggisgæslu. Þá verður að fylgja reglum um klæðaburð sem felur í sér að hylja axlir og hné, forðast stutt pils, stuttbuxur, sandala og ermalausa boli.

Leiðsögn um basilíkuna verður stöðvuð þar sem aðgangur er um Sixtínsku kapelluna.

Þá verður aðgangur að Santa Maria Maggiore-basilíkunni takmarkaður þar sem páfinn óskaði eftir að vera grafinn þar.

Þótt aðgangur verði takmarkaður geta ferðamenn upplifað borgina sem aldrei fyrr eða „einu sinni á bláu tungli“ líkt og Ítalir segja þegar páfi deyr.

Nunnur sem standa í biðröð til að komast inn í …
Nunnur sem standa í biðröð til að komast inn í Vatíkanið í Róm með Péturskirkjuna í bakgrunni. Nú þegar hafa yfir 128.000 manns vottað páfanum virðingu sína.head of his funeral. MARCO BERTORELLO / AFP

Hækkun flugfargjöldum til Ítalíu

„Við munum örugglega sjá hækkun á flugverði til Rómar og Ítalíu á næstu vikum, þar sem hinir trúuðu flykkjast til að votta virðingu sína og hugsanlega til að sjá nýjan páfa tilkynntan,“ sagði Angus Kidman sérfræðingur í ferðaþjónustu hjá Finder í samtali við áströlsku fréttaveituna new.com.au. 

Einnig er líklegt að verð á gistinóttum rjúki upp og þá geta veitingastaðir og verslanir lokað í einhvern tíma. 

Lík páfans verður í Péturskirkjunni til og með 26. apríl, þegar útförin fer fram. Búist er við meiri mannfjölda en við útför Jóhannesar Páls páfa II, árið 2005, þegar um fjórar milljónir manna voru viðstaddir.

Euro News

mbl.is