Fagna 14 ára brúðkaupsafmælinu á skoskri eyju

Kóngafólk | 29. apríl 2025

Fagna 14 ára brúðkaupsafmælinu á skoskri eyju

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín Bretaprinsessa fagna 14 ára brúðkaupsafmæli sínu, svokölluðu fílabeinsbrúðkaupi, í dag, þriðjudaginn 29. apríl.

Fagna 14 ára brúðkaupsafmælinu á skoskri eyju

Kóngafólk | 29. apríl 2025

Hjónin eru glæsileg.
Hjónin eru glæsileg. Ljósmynd/AFP

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín Bretaprinsessa fagna 14 ára brúðkaupsafmæli sínu, svokölluðu fílabeinsbrúðkaupi, í dag, þriðjudaginn 29. apríl.

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín Bretaprinsessa fagna 14 ára brúðkaupsafmæli sínu, svokölluðu fílabeinsbrúðkaupi, í dag, þriðjudaginn 29. apríl.

Hjónin fagna deginum á skosku eyjunni Isle of Mull, en þar eru þau í tveggja daga opinberri heimsókn. 

Vil­hjálm­ur og Katrín gengu í heil­agt hjóna­band í West­minster-klaustri í Lund­ún­um þann 29. apríl árið 2011. Áætlað er að ríf­lega 300 millj­ón­ir manna hafi fylgst með at­höfn­inni sem var sjón­varpað um all­an heim.

Hjón­in kynnt­ust fyrst í St. Andrew há­skól­an­um í Skotlandi. Þar voru þau fyrst ein­ung­is vin­ir og fluttu sam­an með öðrum vin­um í íbúð árið 2002. Það er síðan árið 2004 sem sam­band þeirra varð op­in­bert, en þá sást Katrín með Vil­hjálmi og fjöl­skyldu í skíðaferð í Sviss.

Tímaritið Tatler deildi fallegri mynd af Vilhjálmi og Katrínu á Instagram-síðu sinni. Á myndinni sjást hjónin rölta um götu á eyjunni, umkringd fólki sem allt er með símann á lofti. 

Hjónin klæddu sig í stíl í tilefni dagsins, en bæði kusu þau að klæðast tweed-jakka, ljóslituðum skyrtum, buxum, belti og brúnleitum skó.

View this post on Instagram

A post shared by Tatler (@tatlermagazine)

mbl.is