Bandaríska sjónvarpskonan Amanda Kloots mætti ásamt kærasta sínum, tennisleikaranum Justin Gimelstob, á styrktarviðburð á vegum The Women’s Cancer Research Fund sem haldinn var á Beverly Hills-hótelinu í Los Angeles á mánudagskvöldið.

Þetta er í fyrsta sinn sem parið gengur hönd í hönd niður rauða dregilinn.
Kloots, 43 ára, og Gimelstob, 48 ára, litu út fyrir að vera yfir sig ástfangin og tóku vart augun hvort af öðru allt kvöldið.
Samband þeirra er afar nýtt af nálinni, að sögn Kloots, sem ræddi stuttlega við blaðamann People á rauða dreglinum og sagðist vera afar hamingjusöm.
Kloots missti eiginmann sinn, Broadway-leikarann Nick Cordero, í júlí 2020, en leikarinn lést af völdum kórónuveirunnar.
Sjónvarpskonan ræddi mjög opinskátt um veikindi og dauða Cordero, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, á sínum tíma og viðurkenndi meðal annars í viðtali við People síðastliðið haust að í einni heimsókn hennar til miðils hefði hún fengið skilaboð að handan sem hvöttu hana til að finna ástina á ný.