Nokkur góð ráð fyrir þá sem kunna sig ekki í ræktinni

Heilsurækt | 29. apríl 2025

Nokkur góð ráð fyrir þá sem kunna sig ekki í ræktinni

Það eru eflaust ófáir sem hamast í líkamsræktinni fyrir sumarið, enda fátt meira spennandi en að líta vel út eða a.m.k reyna að líta vel út í baðfötunum á sundlaugarbökkunum hérlendis eða á suðrænni sólarströnd erlendis.

Nokkur góð ráð fyrir þá sem kunna sig ekki í ræktinni

Heilsurækt | 29. apríl 2025

Gold's Gym Nepal/Unsplash

Það eru eflaust ófáir sem hamast í líkamsræktinni fyrir sumarið, enda fátt meira spennandi en að líta vel út eða a.m.k reyna að líta vel út í baðfötunum á sundlaugarbökkunum hérlendis eða á suðrænni sólarströnd erlendis.

Það eru eflaust ófáir sem hamast í líkamsræktinni fyrir sumarið, enda fátt meira spennandi en að líta vel út eða a.m.k reyna að líta vel út í baðfötunum á sundlaugarbökkunum hérlendis eða á suðrænni sólarströnd erlendis.

Í The Guardian er talað um siðfræðina í líkamsræktarsalnum, kannski skrifaðar en mun líklegar óskrifaðar reglur um hvernig eigi að hegða sér í ræktinni.

Sumum er alveg sama en mörgum finnst tilhugsunin um að …
Sumum er alveg sama en mörgum finnst tilhugsunin um að vera í bakgrunni á TikTok-myndskeiði afar óþægileg. Ryan Hoffman/Unsplash

Myndatökur

Með aukinni samfélagsmiðlanotkun hefur færst í aukana að fólk finni þörf fyrir að mynda sjálft sig í hinum ýmsu stellingum í ræktinni. Hafa ber í huga að það eru ekki nærri allir sem kæra sig um að vera í bakgrunninum á TikTok-myndbandi og þegar ræktarunnandinn mætir í stútfullan salinn með þrífót til að mynda sjálfan sig er frekar mikil hætta á að viðkomandi muni fara í taugarnar á nærstöddum.

Í The Guardian er mælt með að koma sér fyrir á rólegra svæði í salnum til að vera ekki fyrir fólki eða öllu heldur svo fólk „birtist“ ekki óvænt inn í bakgrunni myndskeiðsins. Þá er líka alltaf kurteisi að spyrja fólk hvort því sé sama eða láta það vita að verið sé að taka upp.

Það er allt í lagi að biðja um aðstoð þegar …
Það er allt í lagi að biðja um aðstoð þegar lyft er þungu. John Arano/Unsplash

Að gefa óumbeðin ráð

„Fyrir marga getur þjálfun í ræktinni gert þá berskjaldaða og það síðasta sem þeir þurfa er einhver sem bendir þeim á að þeir geri eitthvað rangt,“ segir einkaþjálfarinn og jógakennarinn Shona Vertue.

Annar einkaþjálfari segir að hægt sé að benda fólki á vitleysur séu þær líklegar til að skaða viðkomandi, að öðru leyti á ekkert að vera að skipta sér af æfingum annarra.

Þá er algjörlega í lagi að biðja aðra um aðstoð t.d. þegar verið er að taka miklar þyngdir. En gott er að hafa í huga að biðja ekki 50 kílóa manneskju um að „spotta“ sig þegar verið er að lyfta 80 kílóum.

Það þarf ekki að vera vinsælt ef gefin eru óumbeðin …
Það þarf ekki að vera vinsælt ef gefin eru óumbeðin ráð í ræktinni. Sergio Kian/Unsplash

Að tala í símann

Það er ekki vel séð að spígspora um salinn í símanum, sérstaklega ekki ef talað er hátt, en það getur verið truflandi fyrir aðra í kring. Fólk sem er að hamast í ræktinni hefur engan áhuga á að heyra hvað er að gerast í einkalífi næsta manns sem talar í símann.

Ef þörf er á að nota lóð eða plötur sem eru á tæki sem þegar er í notkun þá er um að gera að spyrja leyfis – þegar viðkomandi hefur klárað settið.

Það tekur fólk mismunandi tíma að klára æfingarnar sínar í tækjunum og því ber að sýna þolinmæði þegar beðið er eftir tæki. Hins vegar þegar æfing er gerð og verið er að bíða eftir tækinu þá er ótækt að hanga t.d. í símanum á meðan dandalast er við æfinguna. Ef settin eru mörg þá má bjóða þeim sem bíða að gera sína æfingu á milli setta.

Ætli það sé ekki bara best að karlmenn haldi sér …
Ætli það sé ekki bara best að karlmenn haldi sér í bolnum á meðan þeir eru í ræktinni. Jeff Tumale/Unsplash

Má daðra, vera ber að ofan eða skólaus?

„Það er ekkert að því að spjalla og mynda vinskap í ræktinni, en flestir eru að nýta tímann til æfinga og því er ekki endilega viðeigandi að daðra,“ segir Josh Davies, stofnandi OMNI Wellness.

Þá mælir hann með að finni fólk þörf fyrir að daðra þá sé hægt að fara varlega í það t.d. með því að bjóða öðrum að æfa með sér í stað þess að bjóða einhverjum sem er í miðju setti með sér á stefnumót.

Mörgum þykir ósmekklegt að sjá aðra bera að ofan í ræktinni og það getur ekki talist spennandi að ímynda sér svitann á dýnunni eða tækjunum. Hins vegar gæti verið ákjósanlegra að fara úr að ofan í standandi æfingum fremur en þar sem t.d. legið er á bekk.

Einkaþjálfararnir sem tjá sig í The Guardian setja ekki mikið út á skólausa einstaklinga í ræktinni. Þær aftur á móti draga línuna við berar tásur og mæla algjörlega gegn því að fólk fari líka úr sokkunum.

The Guardian

mbl.is