Sláandi lík móður sinni

Poppkúltúr | 29. apríl 2025

Sláandi lík móður sinni

Hin 18 ára gamla Fiona Eve, dóttir bandarísku leikkonunnar Jennie Garth, sem er þúsaldarkynslóðinni vel kunn, og fyrrverandi eiginmanns hennar, leikarans Peter Facinelli, þykir sláandi lík móður sinni.

Sláandi lík móður sinni

Poppkúltúr | 29. apríl 2025

Jennie Garth ásamt dóttur sinni, Fionu Eve.
Jennie Garth ásamt dóttur sinni, Fionu Eve. Skjáskot/Instagram

Hin 18 ára gamla Fiona Eve, dóttir bandarísku leikkonunnar Jennie Garth, sem er þúsaldarkynslóðinni vel kunn, og fyrrverandi eiginmanns hennar, leikarans Peter Facinelli, þykir sláandi lík móður sinni.

Hin 18 ára gamla Fiona Eve, dóttir bandarísku leikkonunnar Jennie Garth, sem er þúsaldarkynslóðinni vel kunn, og fyrrverandi eiginmanns hennar, leikarans Peter Facinelli, þykir sláandi lík móður sinni.

Garth, sem gerði garðinn frægan í unglingaþáttaröðinni Beverly Hills, 90210, á árunum 1990 til 2000, deildi fallegum ljósmyndum af þeim mæðgum sem teknar voru fyrir World’s Most Beautiful-tölublað tískutímaritsins People á Instagram-síðu sinni í fyrradag.

Færslan vakti fljótt mikla athygli netverja, enda eru mæðgurnar nauðalíkar í útliti.

Margir rituðu athugasemdir við myndirnar og minntust á líkindi mæðgnanna, en flestir voru sammála um að stúlkan væri eins og snýtt út úr nefi móður sinnar. Nokkrir voru þó ósammála og sögðu stúlkuna vera mun líkari föður sínum. 

Garth og Facinelli, einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í Twilight-seríunni, voru gift á árunum 2001 til 2013 og eiga þrjár uppkomnar dætur á aldursbilinu 18 til 27 ára.

View this post on Instagram

A post shared by People Magazine (@people)

View this post on Instagram

A post shared by Jennie 🤍 (@jenniegarth)

View this post on Instagram

A post shared by People Magazine (@people)



mbl.is