Tveir hnúfubakar léku listir sínar í Faxaflóa

Ferðumst innanlands | 29. apríl 2025

Gestir um borð í hvalaskoðunarskipi Eldingar fengu það sem þeir borguðu fyrir, og aðeins meira en það, þegar þeir héldu út á Faxaflóa í þeirri von um að sjá hvali, höfrunga og hnísur svamla í sjónum í blíðviðrinu á sunnudag.

Vel þess virði!
Vel þess virði! Samsett mynd

Eftir stutta siglingu rak hópurinn augun í tvo hnúfubaka sem voru að næra sig á ríkulegu fæðuframboði í flóanum.

Hnúfubakarnir léku listir sínar og gáfu ferðamönnunum sem og starfsfólki Eldingar nægan tíma til að fanga augnablikið á filmu, en hvalirnir syntu báðir mjög nálægt bátunum og komu reglulega upp á yfirborðið með galopinn kjaftinn.

Elding deildi skemmtilegu myndskeiði frá ferðinni á Instagram-síðu sinni.

Sjón er sögu ríkari!

mbl.is