Anton Þórarinsson selur 625 milljóna höll

Heimili | 2. maí 2025

Anton Þórarinsson selur 625 milljóna höll

Athafnamaðurinn Anton Þórarinsson hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Haukanes aftur á sölu. Um er að ræða 620 fm einbýli sem reist var 2023. Húsið er á sjávarlóð með óhindruðu útsýni út á sjó. 

Anton Þórarinsson selur 625 milljóna höll

Heimili | 2. maí 2025

Anton hefur sett einbýlishús sitt við Haukanes 24 á sölu.
Anton hefur sett einbýlishús sitt við Haukanes 24 á sölu. Samsett mynd

Athafnamaðurinn Anton Þórarinsson hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Haukanes aftur á sölu. Um er að ræða 620 fm einbýli sem reist var 2023. Húsið er á sjávarlóð með óhindruðu útsýni út á sjó. 

Athafnamaðurinn Anton Þórarinsson hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Haukanes aftur á sölu. Um er að ræða 620 fm einbýli sem reist var 2023. Húsið er á sjávarlóð með óhindruðu útsýni út á sjó. 

Anton setti húsið á sölu fyrir tveimur árum og seldist húsið, en kaupandi fékk ekki fjármögnum, þannig að kaupin gengu til baka. 

Húsið er teiknað af Kristni Ragnarssyni arkitekt hjá KRark. Húsið selst í því ástandi sem það er en það er tilbúið til innréttinga. Einnig á eftir að ganga endanlega frá garðinum. 

Húsið er steinsteypt og á tveimur hæðum. 

„Burðarvirkið staðsteypt með járnbentri steinsteypu. Útveggir eru einangraðir að utan með steinull og klæddir með stuðlabergs álklæðningu frá Idex,“ segir í fasteignaauglýsingu. 

https://www.mbl.is/smartland/heimili/2023/12/14/anton_thorarins_selur_halfklarad_glaesihus_vid_hauk/

Húsið er fallega hannað og er á góðum stað með …
Húsið er fallega hannað og er á góðum stað með óhindruðu sjávarútsýni.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Haukanes 24

mbl.is