Greiddu fimmtungi meira í veiðigjöld

Veiðigjöld | 2. maí 2025

Greiddu fimmtungi meira í veiðigjöld

Á fyrstu þremur mánuðum ársins greiddu íslenskar útgerðir 2,9 milljarða króna í veiðigjöld og er það tæplega fimmtungi meira en á sama tímabili í fyrra, en hækkunina má rekja til núverandi veiðigjaldakerfis þar sem álagning tekur mið af afkomu veiðanna fyrir tveimur árum.

Greiddu fimmtungi meira í veiðigjöld

Veiðigjöld | 2. maí 2025

Útgerðir landsins hafa greitt langtum meira í veiðigjöld áþessu ári …
Útgerðir landsins hafa greitt langtum meira í veiðigjöld áþessu ári en í fyrra. mbl.is/Gunnlaugur

Á fyrstu þremur mánuðum ársins greiddu íslenskar útgerðir 2,9 milljarða króna í veiðigjöld og er það tæplega fimmtungi meira en á sama tímabili í fyrra, en hækkunina má rekja til núverandi veiðigjaldakerfis þar sem álagning tekur mið af afkomu veiðanna fyrir tveimur árum.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins greiddu íslenskar útgerðir 2,9 milljarða króna í veiðigjöld og er það tæplega fimmtungi meira en á sama tímabili í fyrra, en hækkunina má rekja til núverandi veiðigjaldakerfis þar sem álagning tekur mið af afkomu veiðanna fyrir tveimur árum.

Allt síðasta ár greiddu útgerðirnar 10,2 milljarða í veiðigjald.

Samkvæmt gögnum Fiskistofu voru innheimtar 1.097 milljónir króna í veiðigjöld í mars síðastliðnum sem er þriðjungi meira en í sama mánuði í fyrra. Þá nam álagning slíkra gjalda rúmlega 971 milljón í febrúar sem var um 10% hærri upphæð en í sama mánuði í fyrra, en í janúar var upphæðin 14% hærri en árið 2024.

 Tóku breytingum um áramót

Um síðastliðin áramót tóku veiðigjöld töluverðum breytingum í samræmi við útreikninga á álagningu þessara gjalda sem taka mið af afkomu veiða hverrar tegundar fyrir tveimur árum, það er að segja árið 2023.

Hækkaði veiðigjald í krónum á hvert í kíló á flestar tegundir en lækkaði í tilfelli ýsu, skötusels og skarkola.

Álagn­ing á upp­sjáv­ar­teg­und­ir jókst veru­lega milli ára, hlutfallslega mest í tilfelli mak­ríls sem hækkaði um 483% og endaði í 10,43 krón­um á kíló. Þá er veiðigjald á síld 10,09 krón­ur á þessu ári sem er 145% hærra en í fyrra. Auk þess hækkaði veiðigjald á loðnu um 86% í 7,29 krón­ur og kol­munna um 30% í 4,16 krón­ur.

Af fiski­teg­und­um hækkaði gjald mest í krón­um talið í til­felli grá­sleppu, úr engu í 11,31 krónu. Ekki hef­ur verið greitt veiðigjald af grá­sleppu áður og er ástæða þess að veiðarn­ar hafa áður fyrr ekki verið stýrðar með kvóta, en teg­und­in var kvóta­sett með laga­setn­ingu á síðasta ári.

mbl.is