Söngleikur um meintan morðinga á fjalirnar

Poppkúltúr | 2. maí 2025

Söngleikur um meintan morðinga á fjalirnar

Luigi the Musical, nýr bandarískur söngleikur, verður frumsýndur þann 13. júní næstkomandi í Taylor Street-leikhúsinu í San Francisco.

Söngleikur um meintan morðinga á fjalirnar

Poppkúltúr | 2. maí 2025

Luigi Mangione.
Luigi Mangione. Ljósmynd/AFP

Luigi the Musical, nýr bandarískur söngleikur, verður frumsýndur þann 13. júní næstkomandi í Taylor Street-leikhúsinu í San Francisco.

Luigi the Musical, nýr bandarískur söngleikur, verður frumsýndur þann 13. júní næstkomandi í Taylor Street-leikhúsinu í San Francisco.

Það þykir eflaust ekki fréttnæmt nema fyrir þær sakir að söngleikurinn fjallar um hinn 26 ára gamla Luigi Mangione, en sá er grunaður um að hafa orðið framkvæmdastjóra heilbrigðistryggingafyrirtækis að bana í New York í byrjun desember í fyrra.

Söngleikurinn, sem er kómedía, fjallar meðal annars um skyndifrægð Mangione og líf hans á bak við lás og slá.

Fangelsisfélagar hins meinta morðingja, Sam Bankman-Fried, rafmyntukóngurinn svokallaði, og tónlistarmaðurinn Sean Combs, eða P. Diddy, munu einnig koma við sögu. 

Sýningin mun standa yfir til 28. júní.

Uppselt er á allar sýningar.

Handtekinn á McDonalds

Mangi­o­ne var hand­tek­inn á skyndibitastaðnum McDon­ald's í Penn­sylvan­íu eft­ir fimm daga leit, með byssu sem passaði við þá sem notuð var í skotárás­inni og fölsuð skil­ríki, að sögn lög­reglu.

Hann á yfir höfði sér 11 kær­ur í New York, þar á meðal morð af fyrstu gráðu og morð sem hryðju­verkaglæp.

Verði hann fund­inn sek­ur um öll atriðin á hann yfir höfði sér lífstíðarfang­els­is­dóm án mögu­leika á reynslu­lausn.

View this post on Instagram

A post shared by @luigithemusical

mbl.is