Fjölmenningarfræðingar vandinn frekar en lausnin

Dagmál | 3. maí 2025

Fjölmenningarfræðingar vandinn frekar en lausnin

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokks­ins seg­ir eng­ar lík­ur á því að sér­fræðing­ar í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lög­um geti leyst stöðuna sem upp er kom­in á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Fjölmenningarfræðingar vandinn frekar en lausnin

Dagmál | 3. maí 2025

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokks­ins seg­ir eng­ar lík­ur á því að sér­fræðing­ar í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lög­um geti leyst stöðuna sem upp er kom­in á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokks­ins seg­ir eng­ar lík­ur á því að sér­fræðing­ar í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lög­um geti leyst stöðuna sem upp er kom­in á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Hóp­ur er­lendra leigu­bíl­stjóra tók yfir kaf­fiskúr leigu­bíl­stjóra í eigu Isavia og hef­ur hann verið notaður undir trú­ariðkun múslima. For­svars­menn Isavia sögðu í sam­tali við Morg­un­blaðið að þeir myndu ráðfæra sig við sér­fræðinga í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lög­um vegna málsins.

„Mig grun­ar að það sé hluti af rót vand­ans frek­ar en lík­leg lausn á þeirri stöðu sem uppi er,“ seg­ir Bergþór sem er gestur í nýjasta þætti Dagmála ásamt Diljá Mist Einarsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, þar sem farið er yfir útlendingamálin í víðum skilningi.

Enginn ánægður með breytingarnar á lögunum

Varðandi málið á Keflavíkurflugvelli segir Bergþór að þetta sé „partur af stærri mynd sem hefur verið að teiknast upp frá 2022 þegar lögum um leigubílaakstur var breytt“.

Hann segir engan vera ánægðan með þær breytingar, hvorki þeir sem vilja meira frelsi á markaðnum né þeir sem vilja fara aftur í fyrra horf.

Vilja leiðsögn sérfræðinga

Guðmund­ur Daði Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri viðskipta og þró­un­ar hjá Isavia, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í síðustu viku að Isavia myndi bregðast við kaffiskúrsmálinu, meðal annars með því að ræða við sérfræðinga í fjölmenningarsamfélögum.

„Við erum að skoða það að ræða við aðila sem eru sér­fróðir í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lög­um til að fá leiðsögn um hvað rétt er. Vegna þess að við vilj­um auðvitað að öll­um líði vel sem eru að stunda at­vinnu­starf­semi á svæðinu okk­ar, óháð trú eða upp­runa,“ sagði Guðmundur.

Spurður hvort að þetta muni leysa ástandið segir Bergþór:

„Ég tel engar líkur á því.“

Samsett mynd/mbl.is/Árni/Eyþór

„Hálfgert stríðsástand“

Bergþór segir fréttir af kaffiskúrnum, sem hann lýsir sem „sjálftöku bænhúsi“, vera ótrúlegar þó þær komi ekki endilega á óvart miðað við þróun leigubílamála á Keflavíkurflugvelli.

„Það gengur ekki það ástand sem hefur verið viðvarandi þarna. Maður hefur fylgst með því úr fjarska þar sem menn hafa veigrað sér við því að taka á málum á leigubílasvæðinu, sem því miður verður ekki lýst með neinum öðrum hætti en þarna hafi verið hálfgert stríðsástand um nokkra hríð. Það er bæði slæmt fyrir ásýnd Íslands, slæmt fyrir leigubílstjórana sem sinntu þessari þjónustu áður, leigubílstjórana sem eru með allt sitt á hreinu sem eru af erlendu bergi brotnir sem eru þarna sömuleiðis. Þeir fá á sig slæma ímynd og umtal vegna þessa,“ segir Bergþór.

Hann segir að á svæðinu séu svartir sauðir sem Isavia hafi ekki þorað að taka á.

Smelltu á hlekk­inn hér að neðan til að nálg­ast viðtalið við Bergþór og Diljá í heild sinni.

Leigubílstjóraskúrinn við Leifsstöð.
Leigubílstjóraskúrinn við Leifsstöð. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is