Starfsfólk Lífs og sálar hélt upp á 25 ára afmæli stofunnar með málþingi á dögunum, en hún var stofnuð árið 2000 af sálfræðingunum Þórkötlu Aðalsteinsdóttur og Einari Gylfa Jónssyni og er í dag rekin af fimm konum.
Starfsfólk Lífs og sálar hélt upp á 25 ára afmæli stofunnar með málþingi á dögunum, en hún var stofnuð árið 2000 af sálfræðingunum Þórkötlu Aðalsteinsdóttur og Einari Gylfa Jónssyni og er í dag rekin af fimm konum.
Málþingið nefndist Fortíð, nútíð og framtíð í mannauðsmálum á Íslandi og voru fengnir flottir fyrirlesarar með áhugaverð erindi. Meðal fyrirlesara var Þórkatla Aðalsteinsdóttir, stofnandi fyrirtækisins, en hún er fremst í flokki hérlendis á sviði vinnusálfræði.
Þá voru einnig með erindi Helgi Héðinsson mannauðsleiðtogi Veitna um þær áskoranir sem mæta mannauðsfólki í dag og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, sem fræddi viðstadda um notkun gervigreinar í mannauðsmálum.
„Við erum auðvitað voða montin af þessum stóra áfanga að vera orðin 25 ára og viljum halda áfram að fagna allt árið! Ætlum t.d. að fá til okkar helsta sérfræðing á sviði vinnusálfræði í heiminum til landsins í október eða nóvember og halda þrjú námskeið í samstarfi við hann. Sá heitir Ståle Einarsen og við höfum átt náið og gott samstarf við hann í gegnum árin en hann hefur tvisvar sinnum áður haldið námskeið í samstarfi við okkur sem hafa vakið mikla lukku á meðal mannauðsfólks og stjórnenda,“ segir í tilkynningu frá Lífi og sál.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Þórkatla Aðalsteinsdóttir annar stofnenda Lífs og sálar og Helgi Héðinsson mannauðsleiðtogi Veitna héldu öll erindi á málþinginu. Þórkatla stofnaði sálfræðistofuna árið 2000.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Starfsfólk og eigendur Lífs og sálar, f.v. Vigdís Ásgeirsdóttir, Jóhann B. Arngrímsson, Auður Erla Gunnarsdóttir, Helga Þórólfsdóttir, Katrín Kristjánsdóttir, Sigríður Oddsdóttir, Andri Hrafn Sigurðsson, Heiðrún Harðardóttir og Þórkatla Aðalsteinsdóttir.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Auður Erla Gunnarsdóttir, sálfræðingur og meðeigandi Líf og sál, og Helga Þórólfsdóttir, sáttamiðlari og stjórnendafræðingur.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Gestir skáluðu að loknum erindum.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Nokkur áhugaverð erindi voru flutt á 25 ára afmæli Lífs og sálar.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Heiðrún Harðardóttir og Helgi Héðinsson.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Góð stemning var að loknum erindum á málþinginu.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Auður Erla Gunnarsdóttir sálfræðingur ásamt gestum.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Auður Erla Gunnarsdóttir lengst til vinstri, ásamt gestum.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Þórkatla Aðalsteinsdóttir er hér lengst til hægri, ásamt gestum.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Heiðrún Harðardóttir, Sigríður Oddsdóttir og Jóhann B. Arngrímsson.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir og Katrín Kristjánsdóttir, sálfræðingur og meðeigandi.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Gestir skemmtu sér konunglega.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Vigdís Ásgeirsdóttir, sálfræðingur og meðeigandi, ásamt gestum.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Ljómandi góð stemning og glaðir gestir.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Að loknum áhugaverðum erindum var boðið upp á léttar veigar.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Gestir hlustuðu af athygli.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir
Fjölmennt var á Tunglinu þar sem málþingið var haldið.
Ljósmynd/Ásta Guðrún Óskarsdóttir