Telur 25 punkta lækkun líklegasta

Vextir á Íslandi | 7. maí 2025

Telur 25 punkta lækkun líklegasta

Gunnar Erlingsson, forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Arion banka, segir að hann telji sennilegast að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 25 punkta 21. maí næstkomandi. Hann segir m.a. að ástæðan fyrir minna skrefi nú en áður var talið séu þau vonbrigði sem nýjar verðbólgutölur ollu.

Telur 25 punkta lækkun líklegasta

Vextir á Íslandi | 7. maí 2025

Gunnar Erlingsson, forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Arion banka.
Gunnar Erlingsson, forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Arion banka. Ljósmynd/Aðsend

Gunnar Erlingsson, forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Arion banka, segir að hann telji sennilegast að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 25 punkta 21. maí næstkomandi. Hann segir m.a. að ástæðan fyrir minna skrefi nú en áður var talið séu þau vonbrigði sem nýjar verðbólgutölur ollu.

Gunnar Erlingsson, forstöðumaður skuldabréfamiðlunar Arion banka, segir að hann telji sennilegast að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 25 punkta 21. maí næstkomandi. Hann segir m.a. að ástæðan fyrir minna skrefi nú en áður var talið séu þau vonbrigði sem nýjar verðbólgutölur ollu.

„Ársverðbólgan er að stíga upp fyrir efri mörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans og í þeirri stöðu er erfitt fyrir nefndina að réttlæta stóra vaxtalækkun,“ segir Gunnar og bætir við að ef horft sé á raunvaxtaaðhaldið þá rökstyðji það einnig 25 punkta.

„Annað sem er áhugavert er að ef horft er á verðbólguálag á skuldabréfamarkaði frá því að vaxtalækkunarferlið hófst þann 2. október síðastliðinn þá hefur það aðeins verið að hækka. Ýmislegt gæti valdið því svo sem launaþróun eða staðan í heimshagkerfinu,“ segir Gunnar.

mbl.is