„Gestir verða brjálaðir fyrstu 24 klukkustundirnar“

Ferðaráð | 11. maí 2025

„Gestir verða brjálaðir fyrstu 24 klukkustundirnar“

Ferðalög án nettengingar eru meðal þeirra sem eru í tísku árið í ár. Samkvæmt Hilton Trends-skýrslunni fyrir árið 2025 eru 27% þeirra sem bóka ferðalög sem vilja minnka samfélagsmiðlanotkun í fríinu. Áhuginn er endurspeglaður hjá Plum Guide, alþjóðlegum vettvangi fyrir leigu á lúxushúsnæði, sem hefur séð aukningu í leit að ónettengdum eignum.

„Gestir verða brjálaðir fyrstu 24 klukkustundirnar“

Ferðaráð | 11. maí 2025

Meðalmanneskja eyðir heilum degi af hverri viku á Facebook.
Meðalmanneskja eyðir heilum degi af hverri viku á Facebook. Samsett mynd/Kiran Anklekar/Marjan Blan

Ferðalög án nettengingar eru meðal þeirra sem eru í tísku árið í ár. Samkvæmt Hilton Trends-skýrslunni fyrir árið 2025 eru 27% þeirra sem bóka ferðalög sem vilja minnka samfélagsmiðlanotkun í fríinu. Áhuginn er endurspeglaður hjá Plum Guide, alþjóðlegum vettvangi fyrir leigu á lúxushúsnæði, sem hefur séð aukningu í leit að ónettengdum eignum.

Ferðalög án nettengingar eru meðal þeirra sem eru í tísku árið í ár. Samkvæmt Hilton Trends-skýrslunni fyrir árið 2025 eru 27% þeirra sem bóka ferðalög sem vilja minnka samfélagsmiðlanotkun í fríinu. Áhuginn er endurspeglaður hjá Plum Guide, alþjóðlegum vettvangi fyrir leigu á lúxushúsnæði, sem hefur séð aukningu í leit að ónettengdum eignum.

Í Mexíkó býður lúxusáfangastaðurinn Grand Velas upp á „stafrænt afeitrunarprógram“ sem er ekki svo ólíkt því sem gerist í hinum vinsælu þáttum The White Lotus.

Stór hluti af ferðaskipulagningu felst í að nota tæknina til að bóka, við innritun og í ferðaáætlanir en getur orðið andstæðan við að komast burt frá öllu þegar hún gegnir aðalhlutverki í fríupplifuninni. 

Það hlýtur að hafa verið ákveðinn lúxus þegar enginn átti …
Það hlýtur að hafa verið ákveðinn lúxus þegar enginn átti farsíma. Anh Tuan To/Unsplash

62% óánægð með tímann í símanum

Samkvæmt It's Time To Log Off eyðir meðalmanneskja heilum degi af hverri viku á Facebook og 34% fólks hefur skráð sig inn á samfélagsmiðilinn á síðustu tíu mínútum. All 62% fólks segist „hata“ hve miklum tíma það eyðir í símanum.

Á vefsíðunni Cool Places er að finna 34 staði sem bjóða upp á stafræna afeitrunardvöl og listinn fer stækkandi. Samhliða áhuga fólks á að vera ónettengt hefur framkvæmdastjóri Cool Places, Martin Dunford, unnið með Greenwich-háskóla og East Anglia-háskóla við að skoða hvað gerist þegar fólk „aftengir“ sig í fríi en ákveðið mynstur er að finna í slíkum tilfellum: 

„Gestir verða brjálaðir fyrstu 24 klukkustundirnar,“ segir Dunford. „En eftir 48 klukkutíma hafa þeir aðlagast og byrjað að færa sig yfir í aðra afþreyingu. Við endann á þriggja daga dvöl – eða lengur – eru gestir ýmist ánægðir eða alveg sama þegar þeir fá símann til baka.“

En af hverju að fara í frí til að vera símalaus? Dunford segir að 24 klukkustunda reynslan sýni að það er ekki auðvelt, það er erfitt að brjóta upp vanann og stafræn fíkn er sérlega erfið. 

BBC Travel

mbl.is