Lúxussvíta í iðnaðarturni vinsæll gististaður

Gisting | 12. maí 2025

Lúxussvíta í iðnaðarturni vinsæll gististaður

Í eldrauðum iðnaðarturni sem stendur við höfnina í borginni Harlingen í Hollandi er búið að útbúa stórglæsilega lúxussvítu, alls ekki ólíka þeim sem er að finna á einhverjum af flottustu hótelum heims.

Lúxussvíta í iðnaðarturni vinsæll gististaður

Gisting | 12. maí 2025

Útsýnið er ólýsanlegt.
Útsýnið er ólýsanlegt. Samsett mynd

Í eldrauðum iðnaðarturni sem stendur við höfnina í borginni Harlingen í Hollandi er búið að útbúa stórglæsilega lúxussvítu, alls ekki ólíka þeim sem er að finna á einhverjum af flottustu hótelum heims.

Í eldrauðum iðnaðarturni sem stendur við höfnina í borginni Harlingen í Hollandi er búið að útbúa stórglæsilega lúxussvítu, alls ekki ólíka þeim sem er að finna á einhverjum af flottustu hótelum heims.

Svítan er til leigu á Airbnb-síðunni og hefur verið einkar vinsæl meðal notenda síðunnar.

Verð á nóttina er 366 bandaríkjadalir eða sem samsvarar um 48 þúsund íslenskum krónum á gengi dagsins.

Svítan er huggulega innréttuð, bæði falleg og björt, og með einstakt útsýni yfir Wadden Sea, en það er sko hverrar krónu virði.

Á staðnum er allt til alls, rúmgóð setustofa, tvöfalt rúm, baðkar, útisturta, míníbar og flatskjár, en hver þarf á slíkum að halda þegar maður horfir út á hafið og getur fylgst með sólarupprás og sólarlagi úr rúminu.

Þetta þarf maður að prófa!
Þetta þarf maður að prófa! Skjáskot/Airbnb
Setustofan er krúttleg.
Setustofan er krúttleg. Skjáskot/Airbnb
Skrefamælirinn verður mjög ánægður, en það þarf að fara upp …
Skrefamælirinn verður mjög ánægður, en það þarf að fara upp slatta af tröppum til að komast í svítuna. Skjáskot/Airbnb
mbl.is