Hópsýking kom upp á Landspítala

Kórónuveiran Covid-19 | 15. maí 2025

Hópsýking kom upp á Landspítala

Kórónuveiruhópsýking kom upp á einni deild Landspítala í lok aprílmánaðar. Alls greindust átta með kórónuveiruna þá vikuna og hefur nú komið í ljós að þá fjölgun megi rekja til hópsýkingar á spítalanum. 

Hópsýking kom upp á Landspítala

Kórónuveiran Covid-19 | 15. maí 2025

Hópsýking kom upp á einni deild Landspítala.
Hópsýking kom upp á einni deild Landspítala. mbl.is/Jón Pétur

Kórónuveiruhópsýking kom upp á einni deild Landspítala í lok aprílmánaðar. Alls greindust átta með kórónuveiruna þá vikuna og hefur nú komið í ljós að þá fjölgun megi rekja til hópsýkingar á spítalanum. 

Kórónuveiruhópsýking kom upp á einni deild Landspítala í lok aprílmánaðar. Alls greindust átta með kórónuveiruna þá vikuna og hefur nú komið í ljós að þá fjölgun megi rekja til hópsýkingar á spítalanum. 

Í tilkynningu frá embætti landlæknis segir að hópsýkingin skýri einnig fjölda þeirra sem voru inniliggjandi á spítala með sjúkdóminn. 

Af þeim 8 sem greindust með veiruna eru sjö í aldurshópnum 65 ára og eldri.

Það sem af er ári hafa afar fái legið inni á sjúkrahúsi vegna kórónuveirunnar og sumar vikur hafi enginn legið inni með kórónuveirusmit. Í lok apríl lágu fjórir inni með kórónuveiruna. 

Á tveggja vikna tímabili, frá 28. apríl til 11. maí, greindust fjórir með kórónuveiruna. Af þessum fjórum sem greindust þessar tvær vikur voru tveir í aldurshópnum 65 ára og eldri og tveir á aldrinum 15-64 ára.

mbl.is