ÁTVR ekki lögð niður

Alþingi | 21. maí 2025

ÁTVR ekki lögð niður

Engin áform eru um að leggja niður Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR).

ÁTVR ekki lögð niður

Alþingi | 21. maí 2025

Fjármála- og efnahagsráðherra segir ekki standa til að leggja niður …
Fjármála- og efnahagsráðherra segir ekki standa til að leggja niður ÁTVR. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Sigurður bogi

Engin áform eru um að leggja niður Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR).

Engin áform eru um að leggja niður Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR).

Þetta kemur fram í skriflegu svari Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um framtíð ÁTVR.

Lýðheilsa, samfélagsleg ábyrgð og verndun unga fólksins

Ingibjörg spurði hvort standi til að leggja niður ÁTVR, sem starfi m.a. á grundvelli lýðheilsu, samfélagslegrar ábyrgðar og þess að vernda ungt fólk samkvæmt ákvæðum laga um verslun með áfengi og tóbak og ef svo væri hvort farið hafi fram lýðheilsumat á slíkri niðurlagningu.

Svar ráðherra er á þá leið að ekki séu áform um að leggja ÁTVR niður.

mbl.is