Flugfélagið PLAY hefur hafið sölu á áætlunarferðum til marakósku borgarinnar Agadir. Fyrsta flugið verður 19. desember næstkomandi en flogið verður einu sinni í viku á föstudögum þangað til um miðjan apríl 2026.

PLAY verður einnig með áætlunarflug til Marrakesh í Marokkó næsta vetur.
Agadir er vinsæll áfangastaður sólþyrstra íbúa Evrópu yfir vetrartímann og er afar nútímaleg og vinaleg. Borgin hefur farið í gegnum talsverða endurnýjun þar sem markmiðið hefur verið að skapa afslappaða upplifun fyrir íbúa og þá sem heimsækja Agadir.
Flugtíminn til Agadir er um fimm og hálf klukkustund en borgin liggur við Atlantshafið og er veðurfar þar því svipað og á Tenerife. Íbúar Agadir upplifa að jafnaði 300 sólardaga á ári en þar má finna gylltar strendur og golfvelli á heimsmælikvarða.
PLAY er nú með 16 sólarlandaáfangastaði í sölu en þar á meðal eru átta á Spáni, fjórir í Portúgal og einnig Split í Króatíu og Antalya í Tyrklandi ásamt fyrrnefndum Agadir og Marrakesh.
„Það er stefnan okkar hjá PLAY að bjóða Íslendingum upp á glæsilegt úrval sólarlandaáfangastaða og Agadir mun engan svíkja. Hvort sem leitað er eftir afslöppun á gylltum ströndum eða að njóta sín á glæsilegum golfvöllum, þá er Agadir frábær kostur. Flugáætlunin okkar til borgarinnar mun ná yfir jólin í ár og páska á næsta ári og veturinn þar á milli og ég er sannfærður um að margir muni nýta þetta einstaka tækifæri til að upplifa þessa mögnuðu borg,” segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY.