Frænka Joes Bidens oft komist í kast við lögin

Poppkúltúr | 5. júní 2025

Frænka Joes Bidens oft komist í kast við lögin

Orðrómur er á kreiki um að Caroline Biden, frænka fyrrverandi Bandaríkjaforseta, Joes Bidens, hafi átt í ástarsambandi við rafmyntafjárfestinn William Duplessie. Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa, í félagi við fjárfestinn John Woeltz, rænt og pyntað ítalskan auðkýfing, Michael Valentino Teofrasto Carturan, í New York, í þeim tilgangi að hafa af honum rafmyntaauðæfin.

Frænka Joes Bidens oft komist í kast við lögin

Poppkúltúr | 5. júní 2025

Caroline Biden hefur átt erfitt síðustu ár.
Caroline Biden hefur átt erfitt síðustu ár. Skjáskot/Youtube

Orðrómur er á kreiki um að Caroline Biden, frænka fyrrverandi Bandaríkjaforseta, Joes Bidens, hafi átt í ástarsambandi við rafmyntafjárfestinn William Duplessie. Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa, í félagi við fjárfestinn John Woeltz, rænt og pyntað ítalskan auðkýfing, Michael Valentino Teofrasto Carturan, í New York, í þeim tilgangi að hafa af honum rafmyntaauðæfin.

Orðrómur er á kreiki um að Caroline Biden, frænka fyrrverandi Bandaríkjaforseta, Joes Bidens, hafi átt í ástarsambandi við rafmyntafjárfestinn William Duplessie. Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa, í félagi við fjárfestinn John Woeltz, rænt og pyntað ítalskan auðkýfing, Michael Valentino Teofrasto Carturan, í New York, í þeim tilgangi að hafa af honum rafmyntaauðæfin.

William situr nú í gæsluvarðhaldi án tryggingar. Á föstudaginn síðastliðinn var tilkynnt um ákæruna en gögn í málinu verður haldið leyndum þar til hann verður yfirheyrður 11. júní.

Óljóst er hvenær nákvæmlega Caroline og William áttu í ástarsambandi.

William Duplessie var ákærður fyrir þátt sinn í að ræna …
William Duplessie var ákærður fyrir þátt sinn í að ræna og pynta ítalskan aukýfing í New York. Curtis Means/AFP

Caroline, sem er bróðurdóttir forsetans fyrrverandi og útskrifaðist frá Georgetown-háskóla, hefur oftar en einu sinni komist í fjölmiðla Vestanhafs fyrir að komast í kast við lögin.

Í ágúst 2019 var Biden handtekin fyrir akstur undir áhrifum, án ökuskírteinis, eftir að hún ók á tré í Lower Merion Township. Niðurstöður úr lyfjaprófi sýndu róandi lyf í blóðinu, Carisoprodol og Lórazepam, en lyfjaglös fundust einnig í bifreiðinni. Hún hlaut skilorðsbundinn dóm.

Árið 2017 var Caroline handtekin fyrir að versla í lyfjaverslun á Manhattan fyrir um 110.000 dollara á stolið kreditkort. „Ég get fullvissað ykkur um að ég hef gert breytingar, lokið greiðslu skaðabóta, lokið samfélagsþjónustu og að ekkert þessu líkt muni koma fyrir aftur,“ á Caroline að hafa sagt.

Árið 2013 var hún handtekin fyrir að slá lögregluþjón í New York, sem hafði verið kallaður til vegna deilna hennar við herbergisfélaga sinn. Þá hlaut hún skilorðsbundinn dóm. Í kjölfarið skráði hún sig í reiðimeðferð á Delray Beach í Flórída.

View this post on Instagram

A post shared by New York Post (@nypost)

Page Six

mbl.is