Í Reykjanesbæ hefja flest börn leikskóladvöl þegar þau eru 24 til 29 mánaða gömul, á sama tíma og meðalaldur barna í Garðabæ við upphaf leikskólagöngu er 15 mánuðir.
Í Reykjanesbæ hefja flest börn leikskóladvöl þegar þau eru 24 til 29 mánaða gömul, á sama tíma og meðalaldur barna í Garðabæ við upphaf leikskólagöngu er 15 mánuðir.
Í Reykjanesbæ hefja flest börn leikskóladvöl þegar þau eru 24 til 29 mánaða gömul, á sama tíma og meðalaldur barna í Garðabæ við upphaf leikskólagöngu er 15 mánuðir.
mbl.is hafði samband við stærri sveitarfélög landsins og bað um meðalaldur barna þegar þau hefja dvöl í leikskóla. Sex sveitarfélög svöruðu en ekki bárust svör frá Árborg og Reykjavík áður en fréttin var skrifuð.
mbl.is óskaði eftir nákvæmum upplýsingum um meðalaldur barna í Reykjanesbæ en slíkar tölur virðast ekki liggja fyrir miðað við skort á nákvæmum svörum leikskólafulltrúa sveitarfélagsins, Ingibjörgu Bryndísi Hilmarsdóttur.
Aftur á móti sagði hún börn hefja dvöl á aldursbilinu 20-29 mánaða, þar af væru flest börn að byrja á aldrinum 24-29 mánaða. Má af því ráða að meðalaldurinn sé hærri en 24 mánaða. Ekkert sveitarfélag sem svaraði mbl.is er með jafn háan meðalaldur.
„Þegar þau byrja í leikskóla getur verið allt frá 20 mánaða og upp í 28-29 mánaða, en það má segja að flest börn eru um 2 -2,5 ára,“ segir Ingibjörg í skriflegu svari.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir, samskiptastjóri Garðabæjar, segir að sveitarfélagið hafi þá yfirlýstu stefnu að um leið og leikskólapláss losni, hvenær sem er yfir árið, að þá séu börn innrituð. Í vor gat Garðabær boðið allt niður í átta mánaða börnum að hefja leikskóladvöl að hausti, þegar þau eru þá 12 mánaða.
„Undanfarið ár er meðalaldur barna þegar þau hefja leikskólagöngu í Garðabæ 15 mánuðir. Við upphaf dvalar að hausti eru flest þeirra barna 12 mánaða,“ segir hún.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðar, segir að í haust sé meðalaldur barna sem hefja leikskóladvöl 17,7 mánaða í Hafnarfirði.
Magnea Steinunn Ingimundardóttir, verkefnastjóri hjá Mosfellsbæ, segir að meðalaldur barna sem hefja leikskóladvöl í Mosfellsbæ í haust sé á bilinu 17-18 mánaða.
Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrabæjar, segir meðalaldur barna sem hefja leikskóladvöl á Akureyri vera 19 mánaða.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir í samtali við Morgunblaðið að öll börn fædd í júní 2024, 14 mánaða, hafi fengið pláss í haust. Meðalaldurinn sé samt 19,7 mánaða.
„Ef við tökum þau börn sem komust ekki inn í fyrra og voru á biðlista þá er meðalaldurinn 19,7 mánaða,“ segir hún.
Eins og fyrr segir þá bárust ekki svör frá Reykjavík né Árborg áður en fréttin var skrifuð og því óljóst hver meðalaldurinn er í þeim sveitarfélögum.
Fyrr á árinu kom tilkynning frá borginni þar sem sagði að öll börn sem verða 18 mánaða eða eldri 1. september næstkomandi, og eru með umsókn í borgarrekna leikskóla, hafa fengið boð um vistun á leikskóla. Þetta segir þó ekki endilega hver meðalaldurinn er.
Samkvæmt frétt mbl.is sem var birt í desember 2024 þá var meðalaldur barna sem komust að í leikskóla í Reykjavík um 22 mánuðir.