Fékk peysufötin frá eiginmanninum

Fatastíllinn | 20. júní 2025

Fékk peysufötin frá eiginmanninum

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík klæddist 20. aldar peysufötum á 17. júní. Sagan á bak við peysufötin eru skemmtileg en fötin fékk hún að gjöf frá eiginmanni sínum. 

Fékk peysufötin frá eiginmanninum

Fatastíllinn | 20. júní 2025

Samsett mynd

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík klæddist 20. aldar peysufötum á 17. júní. Sagan á bak við peysufötin eru skemmtileg en fötin fékk hún að gjöf frá eiginmanni sínum. 

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík klæddist 20. aldar peysufötum á 17. júní. Sagan á bak við peysufötin eru skemmtileg en fötin fékk hún að gjöf frá eiginmanni sínum. 

„Maðurinn minn gaf mér þennan þjóðbúning. Hann var búin að kaupa upphlut en þegar ég kom til saumakonunnar og ætlaði að máta pils og svona þá eiginlega féll ég fyrir þessum peysufötum. Hún hafði þau í umboðssölu og við ákváðum á staðnum að kaupa þau,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík. 

Hér er Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík ásamt Ragnhildi …
Hér er Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík ásamt Ragnhildi Gísladóttur og Skúla Helgasyni. mbl.is/Hákon Pálsson
Svuntan á peysufötunum er úr svörtu og gylltu silkiefni.
Svuntan á peysufötunum er úr svörtu og gylltu silkiefni. mbl.is/Hákon Pálsson

Oddný kom til bjargar

Um er að ræða 20. aldar peysuföt með svartri og gylltri silkisvuntu. Svört slaufa er framan á peysunni og er hvítt brjóst undir sem er afar klæðilegt. Þjóðbúningurinn var keyptur hjá Oddnýju Kristjánsdóttur sem rekur þjóðbúningastofuna 7íhöggi. Oddný er helsti þjóðbúningasérfræðingur þjóðarinnar og auk þess að reka fyrirtæki sitt kennir hún þjóðbúningasaum hjá Heimilisiðnaðarfélaginu. Hún klæddi til dæmis fjallkonuna í Reykjavík í ár en það var leikkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir sem var í því hlutverki í ár. 

„Hún lagaði þetta til og saumaði slaufu fyrir mig því ég vildi ekki vera með slæðu,“ segir Heiða Björg. 

Hefur þú notað búninginn mikið?

„Ég hef ekki notað hann oft en dóttir mín passar í hann og dansaði um bæinn í honum á peysufatadegi Versló,“ segir hún. 

Hjónin Heiða Björg Hilmisdóttir og Hrannar B. Arnarsson.
Hjónin Heiða Björg Hilmisdóttir og Hrannar B. Arnarsson. mbl.is/Karítas
mbl.is